Geiri ekki að hætta með Goldfinger 22. maí 2008 15:48 Ásgeir Davíðsson
Ásgeir Davíðsson sem alltaf er kallaður Geiri er hættur við að opna skemmtistað í gamla Búnaðarbankanum í Austurstræti. Í staðinn opnar hann glæsilegan stað á Grensásveginum sem mun bera nafnið, Steak and Play. Geiri er langt frá því að hætta í bransanum. „Það tekur auðvitað í að standa í þessu og þetta er ekkert uppáhalds djobb," segir Geiri aðspurður hvort hann sé að draga sig út úr „strippinu" en hann rekur súlustaðinn Goldfinger í Kópavogi. Orðrómur hefur verið á kreiki þess efnis að Geiri vilji losna út úr Goldfinger en hann segir að svo sé ekki. „Ég er hinsvegar að fara að opna svakalegt dæmi sem mun heita Steak and play, niður á Grensásvegi 7," segir Geiri en það húsnæði hýsti áður súlustaðinn Bóhem. Húsnæðið er rúmir 500 fermetrar og verður allt til alls að sögn Geira sem stefnir á að opna 10.júlí. „Ég næ því ekki fyrr." En hvernig staður verður þetta? „Þetta verður bara eins og að labba inn í kvikmyndahús. Þarna verður allt í sjónvarpsskjám og sér fjarstýringar á hverju borði. Þú getur þá spilað playstation, horft á boltann, golfið eða bara hvað sem er. Það verður allt í svona básum og maturinn verður eins og á alvöru steikhúsi," segir Geiri. En verða einhverjar fáklæddar stúlkur að dansa? „Það verða einhverjar konur, en ekki graðar konur," segir Geiri og hlær.
Mest lesið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Lífið Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Lífið samstarf Laufey Lín er mætt til Springfield Bíó og sjónvarp Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Lífið Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Tónlist Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Lífið Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Lífið Fleiri fréttir Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Sjá meira