Miðjumaðurinn Tomas Rosicky hjá Arsenal mun missa af fyrstu leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni, en hann fór í hnéuppskurð í maí í vor. Hann hafði vonast til að ná fyrsta leik liðsins í úrvalsdeildinni gegn West Brom þann 16. ágúst en nú er ljóst að hann nær því takmarki ekki.
"Ég veit að ég mun ekki ná fyrstu leikjunum með Arsenal en ég stefni á að komast í gang í september," sagði Rosicky í viðtali við tékkneska fjölmiðla.