Enski boltinn

Auðvitað verður Adebayor áfram

NordcPhotos/GettyImages

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist reikna með því að framherjinn Emmanuel Adebayor verði áfram í herbúðum liðsins á næstu leiktíð þrátt fyrir að vera mikið orðaður við stærstu knattspyrnufélög Evrópu.

"Adebayor er samningsbundinn Arsenal og við eigum von á að hann mæti til æfinga á mánudaginn. Auðvitað verður hann hjá okkur á næsta tímabili," sagði Wenger í samtali við Sky í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×