Innlent

Eldur í íbúð við Kötlufell

Engan sakaði þegar eldur kom upp í íbúð í fjölbýlishúsi við Kötlufell í Reykjavík á tólfta tímanum í gærkvöldi. Fjölmennt slökkvilið var sent á vettvang og voru tveir reykkafarar sendir inn i íbúðina, sem reyndist mannlaus.

Þar logaði eldur í stofu og eru vísbendingar um að hann hafi kviknað út frá kerti. Hann var þegar slökktur og voru íbúðin og stigagangurinn reykræst. Slökkviliðið vill brýna fyrir fólki að gæta varúðar þegar kveikt er á kertaljósum og bendir á gagnlegar upplýsingar á heimasíðu liðsins, sem er shs.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×