Orkuveitan heiðrar hugvitskonur 27. nóvember 2008 20:09
Í dag hlutu tvær hugvitskonur viðurkenningu Orkuveitu Reykjavíkur og KVENN, félags kvenna í nýsköpun, fyrir framlag þeirra til nýsköpunar. „Það voru þær Guðrún Guðrúnardóttir og Margrét Ragnarsdóttir, sem tóku við viðurkenningunum úr hendi Guðlaugs G. Sverrissonar, stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur við athöfn í höfuðstöðvum fyrirtækisins," segir í tilkynningu frá OR. „Guðrún fann upp Plasterplug, nýja lausn til viðgerða á veggjum úr gifsi, stein eða spón, og Margrét, sem er doktor í sjúkraþjálfun, rekur ReMo ehf, sprotafyrirtæki í heilbrigðistækni, sem vinnur að þróun og sölu á mælitækjum í tengslum við sjúkraþjálfun. Við þetta sama tækifæri skrifuðu fulltrúar Orkuveitu Reykjavíkur og KVENN undir samstarfssamning um að veita árlegar uppfinningaviðurkenningar og halda sýningar á íslenskum uppfinningum. Þá kynntu þær Guðrún og Margrét uppfinningar sínar. Elinóra Inga Sigurðardóttir, formaður KVENN, sagði m.a. í ávarpi sínu við athöfnina í dag að viðurkenningunum sé ekki síst ætlað að sýna fram á að frumkvöðlar séu ekki steyptir í sama mót. Þeir séu á ýmsum aldri, með mismikla menntun og af báðum kynjum. Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, lýsti því yfir í sinni tölu að hann vonaðist til að dagurinn í dag markaði upphaf náins samstarfs Orkuveitunnar og KVENN til eflingar nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Þetta er í annað sinn sem slík viðurkenning er veitt. Árið 2005 hlaut hana Guðrún Sæmundsdóttir fyrir nýja lækningaaðferð við eyrnabólgu," segir einnig í tilkynningunni.
Mest lesið Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Innlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Erlent Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Erlent Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Erlent Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Erlent Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Innlent Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Erlent Fleiri fréttir Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Borgarstjóri fór með rangt mál Gagnrýnin hugsun skipti máli Krafa um að Margrét Löf verði gerð arflaus fer fyrir Landsrétt Hófu niðurrif á félagsheimilinu í leyfisleysi: „Skaðinn er skeður“ Fjórir slást um oddvitasæti Viðreisnar Afsögn þingmanns, hótanir Trumps og í beinni frá Svíþjóð Mun hærri dánartíðni og meiri örorka hjá fyrrum vöggustofubörnum „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Vilja Laugardalshöll líkt og þeim var lofað Kviknaði í Svarta sauðnum í Þorlákshöfn Sjá meira