Vinstri beygja frá Bústaðavegi lögð niður 27. nóvember 2008 16:12
Borgarráð samþykkti í dag að loka til reynslu í sex mánuði vinstri beygju af Bústaðavegi inn á Reykjanesbraut í Elliðaárdal. Breytingunni er ætlað að draga úr álagi við gatnamótin og verður á reynslutímanum kannað hvort biðraðir á annatímum styttist. Fram kemur í tilkynningu að gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar hafa verið til skoðunar um nokkurn tíma þar sem til umræðu hefur verið að gera tilraun með lokun á vinstri beygjunni inn á Reykjanesbraut. Umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkur samþykkti einróma tillögu þessa efnis á fundi sínum í vikunni. ,,Áður en tilraunin kemur til framkvæmda verður málið kynnt vel fyrir íbúum hverfisins og öryggi skólabarna í hverfinu tryggt með viðeigandi aðgerðum á Réttarholtsvegi," segir í tilkynningu. Sigrún Elsa Smáradóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar sat hjá við afgreiðsluna í borgarráði. Hún sagði í bókun að Hverfisráð Háaleitis hafi fjallað um málið og sett sig upp á móti lokuninni. ,,Hverfisráðið telur lokunina fela í sér verulega aukna umferð um íbúðarhverfið einkum Réttarholtsveg, en við þá götu stendur Réttarholtsskóli." Þá rifjaði Sigrún Elsa upp að fyrr á kjörtímabilinu hafi þáverandi borgarstjóri Ólafur F. Magnússon lofað að ekkert yrði af lokuninni. Yfirlýsingunni hafi verið fagnað og telur Sigrún Elsa að Sjálfstæðisflokkurinn hljóti að bera ábyrgð á þeim loforðum sem íbúum hafa verið gefin í þeirra umboði á kjörtímabilinu. Umferðarteppa á álagstímum er lítið vandamál miðað við þau óþægindi og skert umferðaröryggi sem íbúar Fossvogs og Bústaðahverfis munu búa við aðra tíma sólarhringsins vegna lokunarinnar, að mati Ólafs F. Magnússonar og borgarfulltrúi F-listans. ,,Ákvörðunin er tekin af stjórnmálamönnum sem þykjast vita betur en fólkið í Fossvogs og Bústaðahverfi sem vill beina umferð út úr hverfinu en ekki inn í það, eins og meirihlutinn í Borgarstjórn Reykjavíkur vill," sagði Ólafur í bókun.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira