Fjárlögin vega að hjúkrunarheimilum 16. desember 2008 13:58 Hrafnista er á meðal hjúkrunarheimila landsins.
Stjórn Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu átelur stjórnvöld harðlega fyrir niðurskurð í heilbrigðiskerfinu í nýjum fjárlögum og segir vegið að starfsemi hjúkrunarheimila. Í yfirlýsingu sem undirrituð er af Gísla Páli Pálssyni formanni samtakanna segir að þar á bæ geri menn sér grein fyrir mjög alvarlegri fjárhagslegri stöðu íslenska ríkisins og íslensks efnahagslífs. „Engu að síður er nauðsynlegt að gera alvarlegar athugasemdir við fram komin frumvörp til fjárlaga 2009 og fjáraukalaga 2008." Bent er á að í fjáraukalögum er ekki gert ráð fyrir einni krónu til þess að greiða væntanlegan rekstrarhalla hjúkrunarheimila. „Sá halli verður væntanlega um 800 milljónir króna af tæplega 14 milljarða króna veltu eða um 6 prósent. Skýring á þessum halla er fyrst og fremst sú að í fjárlögum ársins 2008 er gert ráð fyrir 3,5 prósenta hækkun verðlags en raunin er um 18 prósent hækkun. Þá hefur grunnur daggjalda verið of lágt metinn. Launabætur vegna kjarasamninga ársins hafa verið greiddar til þessara stofnana að hluta en enn vantar upp á að þessar greiðslur séu í samræmi við loforð sem gefin voru í tengslum við kjarasamningagerð síðastliðið sumar. Þessar stofnanir eru margar hverjar sjálfseignarstofnanir og hafa engar aðrar tekjur þannig að brýna nauðsyn ber til að greiða þennan rekstarhalla," segir einnig og fullyrt að margar þessara stofnana munu komast í þrot með launagreiðslur og greiðslur vegna annars rekstrarkostnaðar komi ekki til aukinna fjárframlaga. „Í fjárlögum fyrir árið 2009 eru framlög skorin niður frá upphaflegu frumvarpi. Verði sú raunin mun þjónusta við aldraða skerðast verulega og í raun má segja að þar sé ekki af miklu að taka. Sama á við um aðrar stofnanir innan SFH og má þar nefna SÁÁ, Heilsustofnun NLFÍ og Sjálfsbjargarheimilið," segir ennfremur og að endingu er skorað á fjárlaganefnd Alþingis að gera breytingar á fjáraukalögum 2008 og fjárlögum ársins 2009 „með það að markmiði að tryggja mannsæmandi öldrunarþjónustu á hjúkrunarheimilum landsins og tryggja stofnunum SFH viðunandi rekstrargrundvöll."
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun Sjá meira