Lífið

Með kynþokkafullar konur á heilanum

Kid Rock og Pamela Anderson
Kid Rock og Pamela Anderson
Rokkarinn Kid Rock viðurkennir vanmátt sinn gagnvart kynþokkafullum konum í tímaritinu Independent og heldur áfram að ræða opinberlega um konuna sem hann var giftur í nokkrar vikur, Pamelu Anderson.

„Hún veit hverju ég sé mest eftir," segir Rock og vísar til Pamelu sem hann giftist árið 2006. Þau skildu fjórum mánuðum síðar eftir að hafa gift sig fjórum sinnum á mismunandi stöðum í heiminum.

„Ef ég gæti breytt einhverju í eigin fari væri það að losna við áhugann á kynþokkafullum konum. Guð gaf mér þennan áhuga í vöggugjöf sem ég losna engan veginn við. Ég var raunverulega ástfanginn af Pamelu og trúði því að hjónabandið myndi endast. Ég var algjört fífl, steinblindur."

Eftir skilnaðinn við Pamelu fékk söngvarinn innblástur og samdi lög á nýútkomna plötu Rock N Roll Jesus.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.