Hefner vill Ásdísi í Playboysetrið 6. maí 2008 15:31 MYND/ArnoldStúdio „
Það verður gaman að kíkja þarna, ég bjóst nú ekkert við því að fá boð," segir fyrirsætan Ásdís Rán, sem hefur verið boðið í partý í hinu fræga Playboysetri um næstu helgi. Einu til tvisvar sinnum á ári heldur Playboykóngurinn sjálfur, Hugh Hefner, einkapartý í setrinu, og þangað kemst ekki hver sem er. Aðstoðarkona Hefners hafði samband við Ásdísi til að bjóða henni í partýið, en ekki var þó björninn unninn með því. „Það kemst enginn þarna inn öðruvísi en að sé búið að samþykkja þá. Í framhaldi af boðinu þurfti að senda þeim myndir og allar upplýsingar um mig," segir Ásdís. Hún segir að auk víðfrægra Playboy-skutla mæti margar skærustu stjörnur Hollywood - karlkyns að minnsta kosti - í samkvæmið. Ásdís hefur ekki setið fyrir í Playboy, en hún var ólétt um árið þegar blaðið tók myndaþátt á Íslandi. Hún segir það þó alveg koma til greina. „Ég verð bara að skoða það þegar tilboðið kemur," segir Ásdís hlæjandi. „Ég er ekkert að sækjast eftir því, en maður íhugar alltaf stóra summu af peningum," segir Ásdís, og bætir við að óþekktar stelpur fái um tvær milljónir fyrir myndir í blaðið. „Það eru margar stelpur sem fara þarna með þann draum að verða einhverjar Playboystjörnur" segir Ásdís, aðspurð um það hvort eitthvað sé að græða á partýinu. „Ég fer þarna með það að markmiði að ná í einhver viðskiptatengsl. Og kannski fá smá smakk af stjörnuheiminum." Hægt verður að lesa nánar um ferð Ásdísar á blogginu hennar.
Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Fleygt út í vatn af flóðhesti Lífið Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Lífið „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Lífið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Fleiri fréttir „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Fleygt út í vatn af flóðhesti Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur Sjá meira