Helmingur ráðherra í útlöndum 13. apríl 2008 18:09
Helmingur ráðherra ríkisstjórnarinnar er og hefur verið í útlöndum þessa vikuna, á meðan stjórnarandstaðan og fleiri gagnrýna hana fyrir aðgerðarleysi í efnahagsmálum og flottræfilshátt við ferðalög. Íslensk stjórnvöld hafa að undanförnu mátt sæta gagnrýni vegna aðgerðaleysis í þeirri fjármálakreppu sem nú gengur yfir. Stjórnarandstaðan og aðilar á vinnumarkaði eru meðal þeirra sem kallað hafa eftir viðbrögðum ríkisstjórnarinnar, en hún virðist önnum kafin við annað ef marka má ferðalög ráðherranna undanfarna daga. Geir H. Haarde, forsætisráðherra hefur verið á faraldsfæti undanfarna daga. Í síðustu viku var hann í Svíþjóð og í dag var hann staddur í Boston, en hélt til Nýfundnalands í dag þar sem viðamikil dagskrá bíður hans. Er hann væntanlegur til landsins á miðvikudag. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, er í Washington þar sem hún átti meðal annars fund með Conduleezzu Rice og í dag situr hún fund Alþjóðabankans um loftlagsmál. Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, hélt í opinbera heimsókn til Kína í gær þar sem hann hittir meðal annars ráðherra iðnaðar- og viðskiptamála og aðstoðarráðherra utanríkismála, auk þess sem hann heimsækir íslensk fyrirtæki. Össur Skarphéðinsson hefur undanfarna daga verið á ferð í Afríku, en hann hefur verið að kynna sér orkumál í Eþíópíu, Jemen og Djíbútí. Össur kom heim úr vikuferð sinni í gær. Kristján Möller hélt hins vegar í opinbera heimsókn til Brussel í dag þar sem hann ræðir við framkvæmdastjóra samöngu-, fjarskipta- og byggðamála. Stendur sú ferð fram á miðvikudag. Loks er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir stödd í Þýskalandi í einkaerindum og er hún væntanleg aftur til starfa í byrjun vikunnar.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Sjá meira