Margir vilja Morgunblaðið 2. desember 2008 18:30
Um tólf félög og einstaklingar hafa óskað eftir upplýsingum um stöðu Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, með það fyrir augum að kaupa hlut í félaginu. Gert er ráð fyrir að listi yfir áhugasama kaupendur verði birtur opinberlega. Einn viðmælandi fréttastofu sagði í dag að Árvakur, sem gefur út Morgunblaðið og heldur úti netmiðlinum mbl.is, auk þess að reka prentsmiðju, væri ekki kauphæft félag í því ástandi sem það væri í nú, tap væri mikið og skuldir gríðarlegar. Bankinn þyrfti að gefa mikið eftir til að um raunhæfan möguleika fyrir fjárfesta væri að ræða. Nú er unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu og leitað er að nýjum hluthöfum. Hreinn Loftsson, aðaleigandi útgáfufélagsins Birtíngs, hefur sagt opinberlega að hann hafi áhuga á Morgunblaðinu, en einnig hafa verið nefndir til sögunnar fjárfestar eins og Elfar Aðalsteinsson, barnabarn Alla ríka, Árni Hauksson, sem kenndur er við Húsasmiðjuna, og viðskiptafélagi hans, Hallbjörn Karlsson, en samkvæmt heimildum fréttastofu er aðkoma þeirra á algeru hugmyndastigi. Vilji er til þess að nýr hluthafahópur verði breiður, með aðkomu stjórnenda og starfsmanna Árvakurs. Og sterkur orðrómur er um að verið sé að mynda hóp hluthafa sem hefði áhuga á að koma að blaðinu til að hafa áhrif á umræðuna um Evrópusambandsaðild.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira