Innlent

Líkamsleifar hermanna úr fyrri heimsstyrjöldinni finnast í Frakklandi

Fornleifafræðingar hefur uppgötvað leifar hermanna sem börðust í orrustunni við Fromelles í Frakklandi. Grunur hafði leikið á að fjöldagrafir væru þar til staðar með líkamsleifum hundruða breskra og ástralska hermanna. Uppgröfturinn hafði vakið upp vonir ættingja hinna látna að finna líkamsleifar þeirra svo þeir gætu fengið greftrun við hæfi.

Orrustan við Fromelles átti að beina þýskum hermönnum frá orrustunni við Somme en vegna slæms skipulags mistókst árásin algerlega. Afleiðingarnar voru þær að um 5000 Ástralar létu lífið og 1500 Bretar og samskipti Breta og Ástrala stirðnuðu í kjölfarið.

Fornleifafræðingar kanna einnig svæði á sömu slóðum þar sem haldið er að Þjóðverjar hafi grafið sína látnu en talið er að Adolf Hitler hafi tekið þátt í orrustunni verandi 27 ára undirliðþjálfi í þýska hernum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×