Lágmarksfjöldi íbúa sveitarfélaga hækkaður með lögum 13. nóvember 2008 11:14
Samgönguráðherra kynnir síðar í mánuðinum frumvarp sem hækkar lágmarksfjölda íbúa í sveitarfélagi úr 50 í eitt þúsund. Ráðherrann ræddi í gær við fulltrúa fámennra sveitarfélaga þar sem hann kynnti hugmyndirnar. Samkvæmt frétt á heimasíðu samgönguráðuneytisins lýsti Kristján L. Möller samgönguráðherra fyrirætlunum sínum en hugmyndir eru um að sveitarfélögum verði gefinn aðlögunartími til að vinna að sameiningum fram til ársins 2012. Eftir það myndi hin væntanlega lagabreyting taka gildi. Kristján tók þó fram á fundinum að ef rök mæltu með undanþágu yrði tekið tillit til sérstakra aðstæðna. „Hátt í 50 forráðamenn eða fulltrúar sveitarfélaga með innan við þúsund íbúa sátu fundinn og lýstu þeir margir sig andvíga hugmyndum um að lögbinda lágmarksfjölda, sem sumir töldu til forsjárhyggju, en kváðust sammála því að sameina mætti sveitarfélög," segir á heimasíðu ráðuneytisins. „Fram kom hjá fundarmönnum að skilyrði fyrir frekari sameiningum væru til dæmis umbætur í samgöngu- og fjarskiptamálum og horfa yrði til margs konar landfræðilegra aðstæðna við sameiningar fremur en ákveðins íbúafjölda. Þar skiptu og tekjumöguleikar sveitarfélaganna höfuðmáli. Þá bentu nokkrir fundarmanna á góðan árangur af samvinnu sveitarfélaga um ýmsa þjónustu. Einnig kom fram í máli þeirra að brýnt væri að aukaframlag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, sem greitt var á þessu ári og því síðasta, fengist greitt áfram nú þegar séð væri fram á mikla tekjurýrnun sveitarfélaga," segir einnig.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Fleiri fréttir Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Sjá meira