Hefur áhyggjur af ráðstöfun á IMF-láni Breki Logason skrifar 17. nóvember 2008 12:40 Ólafur Ísleifsson.
Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, segir viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum hefðbundna. Hann segir það skipta máli að sérstaklega sé tekið fram að íslensk stjórnvöld gefi sjóðnum leyfi til þess að birta þessar upplýsingar. Hann hefur hinsvegar áhyggjur af því að þær 800 milljónir dollara sem eru á leið hingað til lands frá sjóðnum fari í hendurnar á sömu mönnum og ríktu hér í hruninu. Ólafur segir að löndum sem þiggja aðstoð frá sjóðnum sé ekki skylt að birta gögn sem þessi. „Landið ákveður það sjálft en það er eðlilegt að svo sé gert ekki síst hjá vestrænu lýðræðisríki," segir Ólafur sem segir þó margt vanta inn í heildarmyndina. „Það vantar til dæmis forsendurnar fyrir þessari gengisstefnu sem á að reka hérna. Einnig hvernig þeir fá út þessa 6 milljarða sem okkur vantar. Ég tók eftir því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir upplýsti í gær að þessir fjórir milljarðar sem nú vantar uppá komi frá Norðurlöndunum," segir Ólafur. Viljayfirlýsingin er birt í heild sinni á dv.is í dag en þar kemur m.a. fram að kanna eigi hvort stjórnendur og helstu hluthafar bankanna hafi gerst sekir um afglöp í rekstri eða misnotkun á bönkunum. Þetta eigi hinsvegar ekki við Seðlabanka Íslands, Fjármálaeftirlitið eða aðrar opinberar stofnanir. Ólafur segir að sjálfsagt megi ræða það fram og tilbaka en telur ekki eðlilegt að Íslendingar geri það að kröfu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. „Menn hljóta hinsvegar að hafa manndóm í sér til þess að gera það sjálfir að eigin frumkvæði." Ólafur segir að komið hafi fram í máli forstjóra sjóðsins að umsókn Íslendinga verði tekin fyrir á miðvikudaginn. Í kjölfarið ættu 800 milljónir dollara að koma inn í kerfið strax. „Það veldur hinsvegar áhyggjum að sömu mennirnir og ríktu hér í hruninu munu taka við þessu fé og ráðstafa því, það hlýtur að vera okkur og umheiminum alvarlegt umhugsunarefni."
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Innlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent Fleiri fréttir „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Sjá meira