Aðstoðarmaður Jóhönnu gagnrýnir forseta ASÍ 12. desember 2008 13:04 Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra.
Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra, gagnrýnir Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ og segir hann ekki spara stóryrðinn í umfjöllun sinni um fjárlögin. ,,Ég skil hinsvegar ekki hvað honum gengur til enda virðist orðaflaumurinn í litlu samhengi við innihald fjárlaganna, amk hvað varðar hag hinna verst settu," segir Hrannar í pistli á heimasíðu sinni. Fjórir milljarðar teknir af fátækum Gylfi hefur gagnrýnt tillögur ríkisstjórnarinnar harðalega. Í Fréttablaðinu í dag segir hann að stjórnvöld skvetti köldu vatni reglulega á þjóðina og forystu verkalýðshreyfingarnar. ,,Það á að taka fjóra milljarða af fátækasta fólkinu. Þetta er svo rosalega ósanngjarnt að við getum ekki kvittað upp á það," segir hann. Elli- og örorkulífeyrisþegar búa við verðtryggðan lífeyri og eiga að fá hækkun í hverjum mánuði. Gylfi bendir á að ríkisstjórnin ætli nú að hækka bætur þeirra aðeins um 9,6%, ekki sem nemur verðtryggingunni. Fylgir þróun verðlags Hrannar segir að samkvæmt fjárlagafrumvarpinu muni allar bætur lífeyrisþega hækka um 9,6% um áramótin. Sama eigi við um frítekjumörk og viðmið sem lúta að útreikningi bótanna. Hann fullyrðir að umrædd hækkun mun bæta að fullu þróun verðlags yfirstandandi árs og veita talsverða viðspyrnu inn í næsta ár. ,,Það sem skiptir hinsvegar mestu máli, og Gylfi virðist algerlega líta framhjá, er að lágmarksframfærslutrygging lífeyrisþega mun hækka um 19,9% um áramótin og fara úr 150.000 í 180.000 ef fjárlagafrumvarpið verður samþykkt óbreytt," segir aðstoðarmaðurinn og bætir við að fjórðungur lífeyrisþega mun njóta umræddrar tryggingar ef af líkum lætur. Átti von á að að forsetinn myndi fagna ,,Hvernig í ósköpunum getur forseti ASÍ haldið því fram að ráðist sé að öldruðum og öryrkjum sem verst standa í ljósi staðreyndanna," spyr Hrannar. Hrannar segir að öllum hljóti að vera ljóst að með með fyrirliggjandi fjárlögum er ríkisstjórnin að gera sér sérstakt far um standa vörð um kjör hinna verst settu. ,,Ég átti satt best að segja von á því að því myndi talsmaður ASÍ fagna." Pistil Hrannars er hægt að nálgast hér.
Tengdar fréttir Tekjuskattur verður hækkaður um eitt prósentustig Tekjuskattur hækkar um 1 prósentustig auk heimildar til hækkunar á útsvari. Með þessum og fleiri aðgerðum mun halli ríkissjóðs verða 165 – 170 milljarðar króna en hefði að óbreyttu geta orðið u.þ.b. 215 milljarðar. 11. desember 2008 10:08 Segir nýja fjárlagafrumvarpið djarft Valgerður Sverrisdóttir formaður framsóknarflokksins segir nýtt fjárlagafrumvarp ríkissjórnarinnar vera djarft. Hún segir greinilegt að eitthvað meira sé í pípunum og nefnir orðróm um að fara eigi inn í búvörulögin og lækka laun bænda. Hún segir alvarlegast að verið sé að auka álögur á launafólk. 11. desember 2008 16:27 Blóðugt niðurskurðarfrumvarp Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar er blóðugt niðurskurðarfrumvarp, að mati Steingríms J. Sigfússonar formanns Vinstri grænna. 11. desember 2008 13:11 Útilokar ekki frekari skattahækkanir Nú rétt í þessu var að ljúka blaðamannafundi í Alþingishúsinu þar sem fjárlagafrumvarpið var kynnt. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Geir H. Haarde og Árni Mathiesen ræddu við fjölmiðla. Geir útilokaði ekki að skattar yrðu hækkaðir frekar en samkvæmt frumvarpinu verður tekjuskattur hækkaður um 1 prósentustig. 11. desember 2008 10:47 Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Sjá meira
Tekjuskattur verður hækkaður um eitt prósentustig Tekjuskattur hækkar um 1 prósentustig auk heimildar til hækkunar á útsvari. Með þessum og fleiri aðgerðum mun halli ríkissjóðs verða 165 – 170 milljarðar króna en hefði að óbreyttu geta orðið u.þ.b. 215 milljarðar. 11. desember 2008 10:08
Segir nýja fjárlagafrumvarpið djarft Valgerður Sverrisdóttir formaður framsóknarflokksins segir nýtt fjárlagafrumvarp ríkissjórnarinnar vera djarft. Hún segir greinilegt að eitthvað meira sé í pípunum og nefnir orðróm um að fara eigi inn í búvörulögin og lækka laun bænda. Hún segir alvarlegast að verið sé að auka álögur á launafólk. 11. desember 2008 16:27
Blóðugt niðurskurðarfrumvarp Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar er blóðugt niðurskurðarfrumvarp, að mati Steingríms J. Sigfússonar formanns Vinstri grænna. 11. desember 2008 13:11
Útilokar ekki frekari skattahækkanir Nú rétt í þessu var að ljúka blaðamannafundi í Alþingishúsinu þar sem fjárlagafrumvarpið var kynnt. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Geir H. Haarde og Árni Mathiesen ræddu við fjölmiðla. Geir útilokaði ekki að skattar yrðu hækkaðir frekar en samkvæmt frumvarpinu verður tekjuskattur hækkaður um 1 prósentustig. 11. desember 2008 10:47