Fengu aðkenningu að reykeitrun 18. nóvember 2008 12:27
Eldur og reykur ógnaði lífi og heilsu bæði fólks og hesta í tveimur eldsvoðum í nótt en engan sakaði. Töluvert eignatjón varð í báðum tilvikum. Þrennt var flutt á slysadeild Landsspítalans vegna aðkenningar að reykeitrun eftir að eldur kviknaði í íbúð í fjölbýlishúsi við Flatahraun í Hafnarfirði á fimmta tímanum í nótt. Fjölmennt slökkvillið var sent á vettvang en eldurinn logaði í einu herbergi og gekk slökkvistarf vel. Töluverðar reykskemmdir urðu þó í allri íbúðinni en ekki þurfti að rýma aðrar íbúðir. Heimilisfólkið mun vera á batavegi en eldsupptök eru ókunn. Þá gjöreyðilagðist nýlega uppgert íbúðarhús í eldi í Þykkvabæ í nótt. Íbúarnir voru ekki heima en minnstu munaði að fimmtán hross yrðu reyk að bráð. Það voru nágrannar sem sáu reyk stíga frá húsinu upp úr miðnætti og leggjast í átt að nálægu hestuhúsi. Kölluðu þeir á slökkvilið og hleyptu svo hrossunum út. Þegar slökkviliðið kom á vettvang var gríðarmikill hiti í húsinu þannig að eldurinn hefur kraumað þar lengi. Slökkvistarf tók nokkrar klukkustundir þar sem eldur var alltaf að gjósa upp aftur en loks náðist að ráða niðurlögum hans. Eldsupptök eru líka ókunn þar.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira