Lífið

Ferðagufubað Hannesar til sölu á netinu

Ferðagufubaðið Total Sauna er til sölu á vefsíðunni jml.com og geta áhugasamir fest kaup á þessu tæki fyrir rúmlega tuttugu þúsund krónur. Hannes, pabbi Ólafs Ragnars, selur þetta í góðri trú í Dagvaktinni.
Ferðagufubaðið Total Sauna er til sölu á vefsíðunni jml.com og geta áhugasamir fest kaup á þessu tæki fyrir rúmlega tuttugu þúsund krónur. Hannes, pabbi Ólafs Ragnars, selur þetta í góðri trú í Dagvaktinni.

„Jón Gnarr rakst á þetta fyrirbæri í þýskum sjónvarpsmarkaði og sagði okkur frá því. Við vorum búnir að velta því fyrir okkur nokkuð lengi hvað Hannes, pabbi Ólafs Ragnars, gæti verið að selja og þegar við sáum þetta hjá Jóni vorum við ekki í nokkrum vafa um að þetta væri málið," segir Ragnar Bragason, leikstjóri Dagvaktarinnar.

Ferðagufubaðið sem Hannes selur í Dagvaktinni hefur vakið mikla kátínu meðal áhorfenda. Eflaust hafa einhverjir hlegið að þessari tilhugsun; að til væri ferðagufubað. En það er semsagt til og er meðal annars til sölu á vefsíðunni jml.com. Tækið er ekkert sérstaklega dýrt, ekki einu sinni miðað við núverandi gengi íslensku krónunnar, en áhugasamir geta fest kaup á því fyrir rúmar tuttugu þúsund krónur í gegnum vefverslun jml.com. Hægt er að pakka Total Sauna saman þannig að úr verður lítill kassi sem hægt er að geyma á fyrirferðarlítinn máta. Og taka síðan fram þegar þannig liggur á viðkomandi. Fram kemur á vefsíðu JML að gufubaðið nýtist vel fyrir þá sem vilja hugsa um línurnar. Ekki sé heldur verra að horfa á sjónvarpið á meðan menn láta streituna líða úr sér.

Ragnar segir að þeir hafi pantað sér tvö eintök fyrir þáttaröðina og að Pétur Jóhann hafi verið sá eini sem hafi fengið að prófa. „Ég held að þetta sé stórhættulegt, allavega varð Pétur Jóhann eldrauður á rassinum. Þetta er náttúrlega bara eitthvert tjald utan um rafmagnsketil," útskýrir Ragnar. Leikstjórinn viðurkennir hins vegar að hafa ekki hugmynd um hvar tækin séu niðurkomin. „Ætli einhverjir í leikmunadeildinni sitji ekki bara á þessu einhvers staðar."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.