Lífið

Eurobandið afhjúpar lokaatriðið

sev skrifar
Regína og Friðrik tóku sig vel út á sviðinu.
Regína og Friðrik tóku sig vel út á sviðinu.
Eurobandið afhjúpaði í dag atriði sitt eins og það verður á undanúrslitakvöldinu í Belgrad 22. maí. Sveitin tók sína fyrst æfingu á stóra sviðinu í Beogradska Arena í dag.

Endanlegir búningar þeirra Friðriks og Regínu voru frumsýndir á æfingunni í dag. Þeir eru nokkuð líkir því sem þau klæddust á úrslitakvöldinu hér heima, svartir en þó með örlitlu neonbleiku. Friðrik Ómar er ermalausri skyrtu, og Regína í pífupilsi.

Góður rómur er gerður að frammistöðunni á opinberri vefsíðu keppninnar. Flutningur bandsins er sagður hafa verið afar kröftugur, og dansatriðið nánast fullkomið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.