Enski boltinn

Verstu hárgreiðslur enska boltans

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ivan Campo er í níunda sæti.
Ivan Campo er í níunda sæti.

Það hafa margir kostulegir kappar komið við sögu í ensku úrvalsdeildinni sem vakið hafa athygli fyrir ýmislegt annað en fótboltakunnáttu. Blaðamenn The Sun hafa tekið saman lista yfir verstu hárgreiðslur sem sést hafa í deildinni og má sjá listann hér að neðan.

10. Barry Venison

Í upphafi ensku úrvalsdeildarinnar var glamúrinn ekki eins mikill og hann er í dag og stíllinn var ekki í aðahlutverki. Venison, miðjumaður Newcastle og Southampton, vakti þó mikla athygli fyrir eina svakalegustu mullet-hárgreiðslu sem sést hefur á knattspyrnuvellinum.

9. Ivan Campo

Þegar Ivan Campo fór frá Real Madrid til Bolton bjuggust margir við því að hann myndi losa sig við spænsku krullurnar. Það gerði hann hinsvegar ekki og voru Campo-hárkollur mjög vinsælar í verslun Bolton við Reebok stadium.

8. David Seaman

Margir vildu meina að Seaman minnti frekar á klámmyndaleikara en fótboltamann eftir að hann fékk sér pony-taglið. Versta stund greiðslunnar var klárlega þegar taglið sveiflaðist með Seaman þegar honum tókst ekki að verja aukaspyrnu Ronaldinho á HM 2002. England féll úr leik á því marki.
7. Taribo West

West bauð upp á margar útfærslur og liti í hárgreiðslu sinni og á myndinni má sjá eitt dæmi af mörgum. Því miður fyrir West þá vakti hárgreiðslan meiri athygli í enska boltanum en frammistaða hans á vellinum. Vísir er reyndar ekki sammála áliti The Sun og telur að hárgreiðsla West sé ein af þeim bestu í enska boltanum.
6. Djibril Cisse

Cisse fær allavega plús fyrir það að honum var alveg sama um álit annarra á síbreytilegri hárgreiðslu sinni. Hann bauð upp á nýja greiðslu í nánast hverri viku hjá Liverpool og vonandi heldur hann uppteknum hætti hjá Sunderland.

5. Joe Cole

Á tímum sínum hjá West Ham lék Cole æfingaleik gegn Southend með þessa hrikalegu greiðslu. Hann krúnurakaði sig að mestu en skildi eftir hár sem hann litaði rautt og þetta var afraksturinn. Hann bar þessa greiðslu ekki lengi og er það skiljanlegt.

4. David James

James hefur átt margar furðulegar greiðslur í gegnum árin en á endanum var þessi valin á listann. James hvarf aftur til 1950 þegar hann skellti sér á þessa greiðslu. Sumir vilja meina að hann hafi viljað líkjast Ofurmenninu milli stanganna.

3. Javier Margas

Framlag Margas í búningi West Ham væri löngu gleymt ef ekki væri fyrir hárgreiðslur hans. Hann gerði tilraun til að vinna stuðningsmenn West Ham á sitt band með því að lita hárið í litum félagsins. Því miður eigum við ekki mynd af þeirri greiðslu en á myndinni má sjá hann með aðra í leik með landsliði Chile.

2. Abel Xavier

Xavier var ekki lítið áberandi á knattspyrnuvellinum. Þökk sé aflýstu hári og skeggi hans sem hann bar stoltur. Hann hefur haldið sig við þessa greiðslu allan sinn feril og lokað eyrunum þegar tískuráðgjafar hafa tjáð sig.

1. Jason Lee

Hárgreiðsla Lee var kannski ekki sú versta. Hann fær þó toppsætið þar sem greiðslan varð frægari en hann sjálfur. „Hann er með ananas á hausnum," var meðal hrópa sem hann fékk frá stúkunni. Ekki er vitað hvort það hafi verið köll áhorfenda eða eitthvað annað sem orsakaði það að leikmaðurinn stóð aldrei undir væntingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×