Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Sindri Sverrisson skrifar 27. desember 2025 19:42 Haukur Þrastarson heldur áfram að gera góða hluti fyrir Rhein-Neckar Löwen. Haukur Þrastarson hefur farið á kostum fyrir lið sitt Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi á leiktíðinni og er í sérflokki í þýsku deildinni þegar kemur að fjölda stoðsendinga.
Haukur fór fyrir liði Löwen í kvöld í 30-26 útisigri gegn Blæ Hinrikssyni og félögum í botnliði Leipzig. Selfyssingurinn skoraði fimm mörk í kvöld og hefur því skorað akkúrat hundrað mörk í deildinni hinga til. Hann er hins vegar líka kominn með hundrað stoðsendingar, og rúmlega það, því eftir átta slíkar í kvöld hefur Haukur átt 102 stoðsendingar í vetur. Sannarlega magnaður árangur. Gísli Þorgeir Kristjánsson kemur næstur á stoðsendingalista deildarinnar, með 88 hjá Magdeburg eftir að hafa átt níu stoðsendingar í kvöld. Í kvöld fara fram síðustu leikirnir fyrir langt hlé í þýsku deildinni vegna EM í janúar, og verður næsta umferð ekki fyrr en 10. febrúar. Haukur er á leið til Íslands þar sem landsliðið hefur formlegan undirbúning sinn fyrir EM næsta föstudag, 2. janúar. Löwen fer í hléið í 7. sæti með 22 stig eftir 19 umferðir, þremur stigum á eftir næsta liði sem er Gummersbach. Leipzig er hins vegar í miklum vandræðum með aðeins einn sigur og samtals fimm stig, á botni deildarinnar, fimm stigum frá næsta örugga sæti.
Þýski handboltinn Tengdar fréttir Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Selfyssingurinn öflugi Haukur Þrastarson átti enn á ný flottan leik með Rhein-Neckar Löwen í þýska handboltanum um helgina. 22. desember 2025 14:03 Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Fótbolti FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira
Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Selfyssingurinn öflugi Haukur Þrastarson átti enn á ný flottan leik með Rhein-Neckar Löwen í þýska handboltanum um helgina. 22. desember 2025 14:03