Innlent

Vopnað rán í söluturni við Grettisgötu

Vopnað rán var framið í söluturni við Grettisgötu um klukkan hálf tólf í gærkvöldi og er ræninginn ófundinn.

Hann hafði klút fyrir vitum og ógnaði afgreiðslumanni með hnífi. Afgreiðslumaðurinn ákvað að fara að kröfum ræningjans, sem komst undan með einhverja fjármuni, talsvert af tóbaki og DVD diska. Afgreiðslumanninn sakaði ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×