Telja fráleitt að Bretar sinni loftrýmiseftirliti 11. nóvember 2008 13:35 MYND/GVA
Þingmenn úr röðum stjórnarandstöðunnar mótmæltu því að kalla hingað breska hermenn til loftrýmiseftirlits í desember á sama tíma og við ættum í harðvítugum deilum við Breta. Formaður utanríkismálanefndar sagði óheppilegt að Bretar kæmu hingað við slíkar aðstæður. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri - grænna, vakti athygli á frétt Fréttablaðsins af því að ákveða ætti í dag hvort Bretar kæmu hingað til loftrýmiseftirlits. Benti hann á að þingflokkur Vinstri - grænna hefði lagt fram þingsályktunartillögu í haust um að þessi gæsla yrði afþökkuð. Benti hann á að Össur Skarphéðinsson hefði sem starfandi utanríkisráðherra sagt að það myndi misbjóða íslensku þjóðarstolti að fá Breta hingað þegar þeir hefðu beitt hryðjuverkalögum gegn Íslandi og íslenskum stjórnvöldum. Spurði Árni hvort það ætti að vera jólagjöf til Íslendinga að Bretar kæmu hingað og sagðist sammála Össuri. Spurði hann Bjarna Benediktsson, formann utanríkismálanefndar, hvort hann væri sama sinnis. Staðan í viðræðum við Breta viðkvæm Bjarni sagði stöðuna í viðræðum við Breta vegna Icesave-reikninganna væri viðkvæm og mikilvægt væri að lenda þeim viðræðum farsællega. Sagðist hann hins vegar telja það óheppilegt að þjóð sem hefði beitt okkur hryðjuverkalögum kæmi hingað til loftrýmiseftirlits. Bjarni benti enn fremur á að Íslendingar hefðu haft frumkvæði að umræddu loftrýmiseftirliti á vettvangi NATO í kjölfar þess að Bandaríkjaher hvarf af landi brott. Aðstæður væru óheppilegar og óheppilegt að Bretar kæmu hingað til loftrýmiseftirlits ef ekki yrði í millitíðinni búið að finna ásættanlega lausn í deilunni um Icesave. Hvar er sjálfsvirðingin? Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, sagði við umræðuna algerlega fráleitt við núverandi aðstæður að fá Breta til að leika sér með herþotur hér við land um jólin á okkar kostnað. Sagðist hann ekki vita til þess að til stæði að ráðast á Ísland í desember. „Hvar er sjálfsvirðingin ef við ætlum að láta þetta yfir okkur ganga," sagði Steingrímur. Það ætti að senda Bretum þeim skilaboð að þeir hefðu ekkert hingað að gera og þeir ættu heldur að reyna að leysa deiluna við íslensk stjórnvöld um Icesave. Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, tók í sama streng og sagði íslensku þjóðina þurfa að hafa þá sjálfsvirðingu að afþakka loftrýmiseftirlitið. Sagði hann það bruðl að henda hundruðum milljóna í í loftrýmiseftirlit og sagði Íslendinga eiga að taka mun ákveðnari afstöðu gegn Bretum. Þeir væru ekki vinir okkar í dag. Vill niðurskurð í varnarmálum Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist telja að loftrýmiseftirlitið hefði lítinn tilgang og þeir sem til þekktu teldu enga hernaðarógn steðja að Íslandi. Þá benti hann á að með breyttum aðstæðum í þjóðarbúinu væri verið að endurskoða verkefni tengd varnarmálum og vildi hann endurskoða rekstur ratsjárkerfisins og Varnarmálastofnunar. Við yrðum að draga saman seglin og á þessum vettvangi væri það kjörið. Taldi hann það óviðunandi að þjóð sem beitti okkur hryðjuverkalögum kæmi hingað. Það vöknuðu líka spurningar um hvort við gætum yfirleitt verið í varnarbandalagi með slíkri þjóð. Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði það ótrúlegan tvískinnung hjá Bretum að hafa beitt Ísland og íslensk fyrirtæki hryðjuverkalögum og ætla svo að koma og sinna loftrýmiseftirliti. Sagðist hann telja að Bretar ættu ekki að koma hingað og við ættum að ræða það við NATO því þetta væri verkefni á vegum þess. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar vöktu athygli á því að enginn fulltrúi Samfylkingarinnar hefðu tekið þátt í umræðunni og vakin var athygli á því að Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hefði gengið úr þingsal þegar umræður hefðu staðið yfir.
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Fleiri fréttir Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sjá meira