Í skoðun að breyta gjaldeyrislögunum 1. desember 2008 06:30 MYND/365 „
Erlendir fjárfestar ætluðu flestir að fjármagna uppbyggingu okkar á næsta ári með hlutafé að langmestu leyti. Það er bannað samkvæmt gjaldeyrislögunum nú eins og ég skil þau," segir Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður Verne Holdings. Félagið er í eigu Novators, fjárfestingarfélags Björgólfs Thors Björgólfssonar og bandaríska fjárfestingarsjóðsins General Catalyst Partners, sem hefur fjárfest nokkuð hér á landi. Verne Holdings er langt komið með uppbyggingu á alþjóðlegu gagnaveri á gamla varnarliðssvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Fjárfestingin hljóðar upp á tuttugu milljarða króna á næstu fimm árum. Þorsteinn segir menn enn vera að átta sig á gjaldeyrislögunum og reglum þeim tengdum og hafi hann rætt við bæði lögfræðinga og fjárfesta vegna þessa. „Okkur sýnist ekki önnur leið í málinu en sú að sækja um undanþágu. Það er ekki þægilegt því bandarískum fjárfestum finnst óþægilegt að leggja mikla peninga í verkefni sem er upp á náð og miskunn hins opinbera. Þeir óttast að undanþágan geti verið afturkölluð." Samkvæmt gjaldeyrislögunum, sem samþykkt voru á Alþingi aðfaranótt föstudags í síðustu viku, felst að viðskipti á milli innlendra og erlendra aðila með verðbréf og aðra fjármálagerninga sem gefin eða gefnir hafa verið út í íslenskum krónum sé óheimil. Erlendum aðilum sé óheimilt að kaupa fyrir milligöngu innlendra aðila verðbréf sem gefin hafa verið út í krónum. Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, segir ólíklegt að lögin hamli fjárfestingu erlendra aðila hér. Markmið þeirra sé að skrúfa tímabundið fyrir útflæði gjaldeyris. Málið verði endurskoðað fljótlega, jafnvel fyrir mars á næsta ári. „Við munum ræða við þá aðila sem hafa áhyggjur. Ef atriði eru í lögunum sem samræmast ekki tilganginum er ekkert því til fyrirstöðu að fá lögunum breytt," segir hann.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira