Sonur minn var trylltur úr hræðslu í skjálftanum 3. júní 2008 08:57 „Mér er alveg sama um alla vasana, stjakana, glösin, speglana og annað veraldlegt dót, ef barninu mínu líður illa," segir Sólveig sem heldur utan um 7 ára son sinn. „
Ég var í bíl á leiðinni frá Eyrarbakka þannig að ég upplifði hann ekki beint, átti fullt í fangi með að halda bílnum á veginum og var næstum búin að missa hann útaf," svarar Sólveig Pálmadóttir viðskiptalögfræðingur sem býr á Selfossi þegar Vísir spyr hana út í hennar upplifun á Suðurlandsskjálftanum. „Ég stekk út að athuga bílinn því ég hélt að það hefði hvellsprungið eða festingar í stýri hefðu gefið sig þá heyri ég ofboðslegar drunur og lít á Ingólfsfjall og sé að það stendur í rykmekki og það miklum. Þá átta ég mig á því að þetta var allsvakalegur jarðskjálfti og sé að bílar undir fjallinu eru að stoppa. Þá áttaði ég mig á að þetta var jarðskjálfti." „Það sem situr mjög fast í mér er að ég var búin að ákveða um morguninn að labba á fjallið að deginum til, en eitthvað stoppaði mig. Mikið var brotið hér heima og auðvitað hef ég brotnað niður eins og aðrir. Hræðslan og óöryggið er enn til staðar." „Sonur minn, Hrafn Erlingsson sem er 7 ára, var trylltur úr hræðslu, hann var á skólavistun, og hágrét þegar ég sótti hann um korter eftir skjálftann, hann neitaði að fara inn í hús og sat grátandi í bílnum og grátbað mig um að fara burt frá Selfossi." „Ég varð að senda hann í bæinn til pabba síns strax um kvöldið sem var erfitt því á svona stundum þurfa þau á okkur að halda, en ég vildi ekki yfirgefa heimilið heldur, vissi að hann yrði í góðum höndum þar. " „Það mega líka koma fram hugsanir barnanna, því mikið hefur verið rætt við fullorðna. Það sló mig í hádegisfréttum Stöðvar 2 þegar Jóhanna Róbertsdóttir svæðisstjóri Rauða krossins svaraði Sigmundi Erni á þá leið að börn upplifi þetta á þann hátt að þau tjái sig ekki um þetta, með því er hún nánast að meina að þau skipti ekki máli í þessu öllu. Þvílíka bullið." „Mér er alveg sama um alla vasana, stjakana, glösin, speglana og annað veraldlegt dót, ef barninu mínu líður illa vegna þessa og neitar að vera heima, á eina staðnum sem hann á að finna fyrir öryggi í lífinu. Börnin sem upplifðu þennan skjálfta gleyma þessum degi aldrei meðan þau lifa. Mér þykir verst að hafa ekki verið hjá honum þegar þetta gerðist."
Mest lesið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið Konur leggja niður störf og krefjast jafnréttis Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið „Maður er sjálfur ákveðið vörumerki“ Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Fleiri fréttir Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Sjá meira