Innlent

Framkvæmdastjóri ASÍ: Kaupréttarsamningar bera vott um tvöfalt siðgæði

Framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands segir kaupréttarsamninga forstjóra og stjórnarformanns Kaupþings bera vott um tvöfalt siðgæði. Davíð Oddsson sagði það dómgreindarleysi á sínum tíma þegar sambærilegir samningar voru uppi á borðinu.

Kaupþing seldi þeim Sigurði Einarssyni og Hreiðari Má Sigurðssyni 1,6 milljónir hluta í bankanum á genginu 303 á 484 milljónir króna Gengi bankans á hádegi í dag stóð í 706 stigum. Selji þeir þennan hlut á því gengi fá þeir í sinn hlut ríflega 1,1 milljarð króna og hagnaður þeirra næmi þá um 640 milljónum króna. Fengu þeir því ríflega 320 milljónir króna í sinn hlut.

Kaupþing hefur það sem af er ári skilað 34 milljörðum í hagnað en gengi hlutabréfa í bankanum hefur fallið um nærri 500 stig.

Framkvæmdastjóri ASÍ segir kaupréttarsamninga sem þessa út úr öllu korti og langt umfram það sem gengur og gerist í nágrannalöndunum. Gylfi segir þetta síst til þess fallið að skapa samstöðu um aðgerðir gegn efnahagsvandanum.

Í nóvember 2003 var tilkynnt um að þessir sömu stjórnendur sama banka, sem þá hét reyndar Kaupþing Búnaðarbanki, fengju um þrjú hundruð milljónir króna vegna kaupaukasamnings. Davíð Oddssyni, sem þá var forsætisráðherra, ofbauð þessi gjörningur og sagði við tilefnið að það væri yfirgengilegt og ótrúlegt að menn skyldu leyfa sér þetta.

Til að mótmæla þessum greiðslum lagði hann leið sína í bankann og tók út allt sparifé sitt, um fjögur hundruð þúsund krónur, og fylgdi fjöldi fólk fordæmi hans. Tilkynnti bankinn í kjölfarið að kaupaukasamningnum hafi verið slegið á frest.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×