Fjármagn til Nýrrar sýnar kom ekki frá íslenskum viðskiptabönkum 13. nóvember 2008 15:28 Jón Ásgeir Jóhannesson. „
Maður kemur fram opinberlega og segist ætla að brjóta á rétti annars manns. Sá seinni segir: Ef þú brýtur á rétti mínum mun ég kæra þig. Sá fyrri kallar það ósvífnar og forkastanlegar hótanir." Þetta er upphafið að yfirlýsingu frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, stjórnarformanni 365 hf. Í yfirlýsingunni deilir Jón Ásgeir á Ágúst Ólaf Ágústsson varaformann Samfylkingarinnar, sem hefur krafist upplýsinga frá viðskiptabönkunum um hugsanlegar lánveitingar til Nýrrar sýnar ehf. Jón brást við þeim yfirlýsingum í gær með því að hóta lögsókn, enda væri það brot á bankaleynd að veita þessar upplýsingar. Ágúst svaraði því að bragði á Vísi og kallaði svar Jóns fordæmislaust og með ólíkindum. „Það er eðlilegt að margvíslegar tilfinningar ráði för fólks þessa dagana. Þó má gera þá kröfu að þingmaður, formaður viðskiptanefndar Alþingis og varaformaður stærsta stjórnmálaflokks landsins byggi málflutning sinn á rökum og fari að lögum," segir í yfirlýsingunni frá Jóni Ásgeiri. „Ágúst Ólafur Ágústsson sagðist á borgarafundi í Iðnó myndu krefjast upplýsinga frá viðskiptabönkunum um hugsanlegar lánveitingar til Nýrrar sýnar ehf. (áður Rauðsólar ehf.). Með því krefst hann brota á lögum um bankaleynd og sú krafa fær aukið vægi í ljósi þess að ríkið er eigandi viðskiptabankanna. Þetta er grafalvarlegt mál og það dugar þingmanninum ekki að skjóta sér á bak við annars ágæt tilmæli Samkeppniseftirlitsins, sem komu fram þremur dögum eftir að hann lofaði lögbrotunum," segir ennfremur. „Hvar ætlar þingmaðurinn draga mörkin í þessari furðulegu rannsókn sinni? Verða bankaviðskipti fleiri einkafyrirtækja - eða jafnvel einstaklinga - að umfjöllunarefni hjá alþingi? Eða er sjálfsagt að brjóta á rétti sumra fyrirtækja vegna eignarhalds þeirra og almennrar stemmningar í samfélaginu? Réttlætingin á lögbrotunum er sögð staða og samkeppni á fjölmiðlamarkaði. Hún er sú að ríkissjóður dælir árlega þrjú þúsund milljónum í RÚV sem þó keppir við einkarekna fjölmiðla um auglýsingafé og hefur yfirburðastöðu á markaðinum. Morgunblaðið er sagt í miklum rekstarvanda. Skjár Einn hefur sagt upp öllu starfsfólki og hverfur kannski af sjónarsviðinu á næstunni. Viðskiptablaðið er í greiðslustöðvun og 365, með Fréttablaðið og Stöð 2 innanborðs, hefði farið í þrot fyrir viku síðan ef ekkert hefði verið aðhafst." Jón Ásgeir bætir því við að það eina sem fyrir honum hafi vakað með kaupum á fjölmiðlum 365 hafi verið að „forða 365 frá að lenda í gjaldþroti. Það hefði valdið miklum skaða, ekki síst fyrir lánardrottna, gert starfsmenn atvinnulausa og fjölmiðlaflóru landsins mun fábrotnari. Ég hef margoft lýst yfir að öllum núverandi hluthöfum 365 gefst kostur á að kaupa sambærilega eignarhluti í Nýrri sýn ehf. Eignarhald á umræddum fjölmiðlum mun því ekki breytast nema einhverjir núverandi hluthafar 365 kjósi að taka ekki þátt í hlutafjáraukningunni. Fari svo að núverandi hluthafar nýti ekki forkaupsrétt sinn, verða nýir hluthafar fengnir að félaginu og þannig tryggt að eignarhaldið verði áfram dreift." „Að lokum þykir mér rétt að upplýsa, svo þingmaðurinn geti einbeitt sér að öðrum og mikilvægari verkefnum, að fjármagn til kaupa Nýrrar sýnar á fjölmiðlum 365 kom ekki frá íslenskum viðskiptabönkum."
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Sjá meira