Eftirlitssveitin í uppnámi 2. janúar 2008 21:01 MYND/Pjetur
Uppsögn vopnahléssamkomulagsins á Sri Lanka af hálfu stjórnvalda hefur sett framtíð vopnahléseftirlitssveitarinnar í uppnám að sögn utanríkisráðuneytisins en sveitirnar eru skipaðar Íslendingum og Norðmönnum. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að ákvörðunin sé hörmuð og óttast menn að uppsögnin verði til þess að auka enn á hörmungar íbúa landsins. „Samkvæmt ákvæðum samkomulagsins skal tilkynna norska utanríkisráðuneytinu það með 14 daga fyrirvara verði samkomulagið fellt úr gildi af öðrum hvorum aðilanum. Formleg tilkynning liggur ekki fyrir, en stjórnvöld á Sri Lanka hafa gert fyrirætlun sína opinbera," segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. „Íslensk stjórnvöld harma þessa ákvörðun stjórnvalda í Kolombó og óttast að hún verði til þess að auka enn hörmungar íbúa landsins. Eftirlit vopnahléseftirlitssveitarinnar á Sri Lanka (SLMM - Sri Lanka Monitoring Mission) hefur, þrátt fyrir aukin átök og vopnahlésbrot undanfarið, haft hamlandi áhrif á stríðandi fylkingar í landinu og haldið opnum tengslum við báða deiluaðila. Án eftirlitsins er hætta á að átökin verði bæði grimmilegri og víðtækari." Þá segir að ljóst sé að uppsögn vopnahléssamkomulagsins muni setja starfsemi SLMM í uppnám enda sé umboð og öryggistrygging eftirlitssveitanna alfarið byggð á samkomulaginu. „Utanríkisráðuneyti Noregs og Íslands eru í nánu samstarfi um málið og munu taka ákvörðun um starfsemi SLMM þegar formlegar upplýsingar berast frá stjórnvöldum á Sri Lanka." Níu íslenskir friðargæsluliðar eru starfandi innan eftirlitssveita SLMM.
Mest lesið Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Ekið á hjólreiðamann Innlent Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Innlent Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Innlent Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Innlent Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Erlent Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Erlent Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Innlent „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Innlent Fleiri fréttir Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Tölvuþrjótar hrella háskólanemendur og Reform rúllar upp kosningum á Englandi Tilbúinn í umræður um hlaðvörpin en afdráttarlaus varðandi Rás 2 Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent Ekið á hjólreiðamann Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi „Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól í Reykjavík Einn öskrandi og til ama og annar sofandi á gatnamótum Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Sjá meira