Neyðarlínan og Gæslan spari og flytji á Keflavíkurflugvöll 22. desember 2008 06:00 Eftir að her Bandaríkjamanna fór frá Íslandi hefur ratsjáreftirlit heyrt undir utanríkisráðuneytið.
Utanríkisráðuneytið hafnar útreikningum Neyðarlínunnar sem kveðst geta starfrækt ratsjárkerfi fyrir 346 milljónum króna lægri upphæð en reksturinn kostar á þessu ári. Í minnisblaði Neyðarlínunnar er gert ráð fyrir að ratsjáreftirlit yrði tekið úr höndun Varnarmálastofnunar og flutt frá Keflavíkurflugvelli í Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð í Reykjavík. Þar með flyttist þessi starfsemi undan utanríkisráðuneytinu og undir dómsmálaráðuneytið. Neyðarlínan telur kostnaðinn við rekstur eftirlitsins í Skógarhlíð mundu verða 476 milljónir króna. Samkvæmt fjárlögum þessa árs á reksturinn hins vegar að kosta 822 milljónir, eða 346 milljónum króna meira eins og áður segir. „Minnisblað Neyðarlínunnar er því miður vanbúið gagn enda ekki byggt á réttum forsendum varðandi rekstur íslenska ratsjárkerfisins,“ segir í svari utanríkisráðuneytisins til Fréttablaðsins. Utanríkisráðuneytið segir Neyðarlínuna ekki gera ráð fyrir umsýslu loftvarnarkerfis NATO, miðlun upplýsinga til herstjórna bandalagsins, sértækra viðhaldssamninga við NATO né ýmissa annarra krafna. „Enginn stofnkostnaður er tilgreindur, ekki er gert ráð fyrir kostnaði við nauðsynlegar breytingar á húsnæði í Skógarhlíð né þeim breytingum sem gera þarf á nánasta umhverfi vegna öryggiskrafna. Þá er mannaflaþörf vanmetin í minnisblaðinu. Varnarmálastofnun er nú rekin í húsnæði sem bandaríski herinn skildi eftir og mikið hagræði er af að nýta. Mikill vannýttur húsnæðiskostur er á svæðinu sem gæti nýst fyrir hvers kyns öryggis- og björgunarstarfsemi.“ Ríkisstjórnin hyggst skipa nefnd sem á að skoða leiðir til að spara í rekstri Landhelgisgæslunnar, Varnarmálastofnunar, Siglingamálastofnunar og fleiri stofnana með því að samnýta aðstöðu eða starfsemi. „Eitt markmiða með starfi samlegðarnefndarinnar hlýtur að vera að finna hagræðingartækifæri fyrir fleiri innlendar stofnanir á varnarsvæðinu í Keflavík en þangað mætti til dæmis flytja starfsemi Landhelgisgæslunnar og hugsanlega Neyðarlínunnar og spara með því fé,“ bendir utanríkisráðuneytið á.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira