Innlent

Viðskiptaráðherra heimsækir Kína

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra.
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra. MYND/GVA

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra heldur í opinbera heimsókn til Kína í dag. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að heimsóknin sé farin til að endurgjalda heimsókn viðskiptaráðherra Kína til Íslands í júní í fyrra.

Ráðherrann mun heimsækja ráðherra iðnaðar- og viðskiptamála og aðstoðarráðherra utanríkisviðskiptamála. Auk formlegra samskipta við stjórnvöld verða ýmis íslensk fyrirtæki heimsótt í Hong Kong, Zhongshan og Peking. Tilgangur ferðarinnar er meðal annars að stofna til frekari viðræðna við kínversk stjórnvöld um sameiginlega viðskiptahagsmuni og treysta viðskiptatengsl Íslendinga og Kínverja, segir í tilkynningu viðskiptaráðuneytisins.

Í ljósi ástands mannréttindamála í Kína, og ekki síst ástandsins í Tíbet, muni viðskiptaráðherra taka þau mál upp í viðræðum hans við kínverska ráðamenn. Íslensk stjórnvöld hafi áður tjáð Kínverjum þá afstöðu sína að það sé þjóðréttarleg skylda Kínverja að virða mannréttindi í Tíbet. Þessi afstaða verði frekar áréttuð í ferðinni og áhersla lögð á hve órjúfanlegum böndum viðskiptafrelsi, upplýsingafrelsi og mannréttindi eru tengd. Af því tilefni hafi verið óskað eftir sérstökum fundi um mannréttindamál með aðstoðarutanríkisráðherra Kína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×