Harðsvíraður Helgi Björns í fylgd nektardansmeyja 24. apríl 2008 00:01 Skuggalegur Helgi Björns er vígalegur sem undirheimakóngur og súlustaðaeigandi í sjónvarpsþáttaröðinni Svartir Englar. Fréttablaðið/Arnþór „
Já, það verður gaman að rifja upp gamla takta frá Sódómu Reykjavík. Þar var ég náttúrlega með mína undirheimastarfsemi í Hafnarfirði en hef nú fært út kvíarnar í höfuðborgina," segir Helgi Björnsson sem leikur undirheimakónginn Lárus eða Lalla í sjónvarpsþáttaröðinni Svartir englar. Lárus heldur sig oftast á ónefndum súlustað í höfuðborginni og þykir fátt jafn skemmtilegt og að horfa á fáklæddar stúlkur skaka sér við súluna. Tökur á Svörtum englum hófust í fyrradag en þáttaröðin er byggð á bókum Ævars Arnar Jósepssonar og verður sýnd á RÚV. Helgi er ekki ókunnugur mönnum sem hafa lent utanvega í samfélaginu en hann fór á kostum sem Moli í áðurnefndri Sódómu. Þá eins og nú var Óskar Jónasson við stjórnvölinn og Helgi hlakkaði mikið til að endurnýja kynnin við leikstjórann. Reyndar er fleira Sódómu-fólk sem kemur að gerð Svartra engla því Sigurjón Kjartansson skrifar handritið ásamt Margréti Örnólfsdóttur. Sigurjón lék einmitt einnig stórt hlutverk í Sódómu þar sem rokkhundarnir í HAM fóru á kostum. „Þetta er náttúrlega fyrst og fremst manneskja sem er að reyna komast áfram í erfiðri veröld og til þess þarf hann að nota margvísleg meðul," segir Helgi sem var nýkominn til Íslands frá Þýskalandi þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Leikarinn og leikhúseigandinn tekur jafnframt fram að það sé yfirleitt skemmtilegra fyrir sig að fást við persónur sem eru ekki með geislabauginn yfir höfðinu. „Þær eru oft litríkari og forvitnilegri en við meðaljónin, því miður," segir Helgi og hlær. Hann tekur þó ekki undir þær fullyrðingar að hann sé alltaf valinn í hlutverk óþokka í kvikmyndir og leikrit en getur sér til að ef svo er hafi hið vestfirska og harðgerða útlit eflaust eitthvað með það að gera. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Sjá meira