Þúsundir skora á Þorgerði 11. nóvember 2008 06:00 Berst fyrir lífi Skjás eins og þar skiptir sköpum fyrirferð RÚV á auglýsingamarkaði. 34 þúsund skora á menntamálaráðherra að laga brenglaða samkeppnisstöðu. „
Þetta er frábært. Ótrúlegur fjöldi. Undirskriftasöfnunin fór af stað fyrir rétt rúmri viku,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Skjás eins. Þegar þetta er skrifað hafa tæp 34.500 skráð sig á undirskrifalista þar sem skorað er á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra að leiðrétta skakka samkeppnisstöðu á auglýsingamarkaði vegna stöðu Ríkissjónvarpsins þar. Er þetta líklega stærsta marktæka undirsskriftarsöfnun sem fram hefur farið á Netinu til þessa en gefa þarf upp kennitölu til að koma í veg fyrir misnotkun. „Á hverju ári fær RÚV þrjú þúsund milljónir króna í forskot frá okkur skattgreiðendum og getur því notað þann pening til að yfirbjóða aðrar stöðvar við kaup á efni,“ segir í áskoruninni sem er afgerandi. Sigríður Margrét er ánægð með viðbrögðin en segir fjöldann í sjálfu sér ekki koma á óvart þegar litið er til þess að 80 prósent Íslendinga á aldrinum 12 til 80 ára horfa á Skjá einn í hverri viku. „Skjár einn veitir ókeypis afþreyingu sem skiptir afskaplega miklu málin í því umhverfi sem við búum í núna.“ Framkvæmdastjórinn er með tvö mál á sínu borði sem skipta sköpum um hvort Skjár einn lifir eða deyr. Annað eru endursamningar við erlenda birgja – hitt er hvort Þorgerður Katrín sjái ljósið að sögn Sigríðar. „Nú bíðum við þess að samkeppniseftirlitið veiti ráðherra álit. Þá segist Þorgerður hafa sett upp starfshóp sem á að skila af sér áliti um stöðu RÚV á auglýsingamarkaði. Þegar sú niðurstaða er fyrirliggjandi við afhenda undirskriftarlistana í þeirri von að Þorgerður taki rétta ákvörðun.“ Aðspurð hvort álit starfshópursins sé ekki „að setja í nefnd dæmi“ og út úr því muni aldrei koma neitt segst Sigríður Margrét ekki trúa því. Þetta mál hljóti að fá hraða afgreiðslu. „Annað væri ekki sanngjarnt gagnvart fólki sem hefur fengið uppsagnarbréf.“ - jbg
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira