Enski boltinn

Muntari á leið til Inter

Elvar Geir Magnússon skrifar
Sulley Muntari.
Sulley Muntari.

Sulley Muntari, miðjumaður Portsmouth, er að ganga til liðs við Ítalíumeistara Inter fyrir 12,7 milljónir punda. Þessi 23 ára landsliðsmaður frá Gana hefur samþykkt fjögurra ára samning.

Þessi kaup þykja benda til þess að Jose Mourinho hefur gefist upp á að reyna að krækja í Frank Lampard í sumar. Mourinho vildi bæta við sig miðjumanni og var Lampard hans fyrsti kostur en Muntari númer tvö.

Portsmouth keypti Muntari frá Udinese á 7 milljónir punda í maí á síðasta ári. Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, hefur ausið leikmanninn lofi og vildi ekki missa hann. Muntari gat þó ekki horft framhjá tækifæri til að ganga til liðs við Inter.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×