Fá gjaldfrest á hluta af aðflutningsgjöldum 14. nóvember 2008 11:54
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra lagði fram frumvarp á ríkisstjórnarfundi fyrr í dag um tímabundnar breytingar á tollalögum. Þar er lagt til að virðisaukaskattskyldum aðilum verði veittur gjaldfrestur á hluta af aðflutningsgjöldum, þar með töldum virðisaukaskatti, vegna innflutnings á tímabilinu september og október 2008, en greiðsla þeirra fellur í eindaga þann 17. nóvember. Með þessu er komið til móts við þau fyrirtæki sem lent hafa í greiðsluerfiðleikum vegna gengisfalls íslensku krónunnar og truflana í gjaldeyrisviðskiptum. „Samkvæmt frumvarpinu verður umræddum aðilum heimilað að greiða þá fjárhæð sem fellur í eindaga 17. nóvember með þremur jöfnum greiðslum, þ.e. þann 17.nóvember 2008, 15. desember 2008 og 5. janúar 2009. Þeir sem velja þessa leið munu þurfa að greiða almenna meðalvexti af þeim hluta greiðslunnar sem frestað er í stað dráttarvaxta. Vextir verða í þessu tilviki jafnháir vöxtum sem Seðlabanki Íslands ákveður og birtir á hverjum tíma skv. 1. mgr. 8.gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu. Þeir sem nýta sér þessa heimild verða ótilkvaddir að greiða þær fjárhæðir sem eru í gjaldfresti hjá innheimtumanni ríkissjóðs á umræddum gjalddögum. Að öðru leyti gilda ákvæði tollalaga um gjalddaga og greiðslufyrirkomulag. Ríkisstjórnin samþykkti frumvarpið fyrir sitt leyti og verður það lagt fyrir Alþingi eins fljótt og kostur er. Þá mun fjármálaráðherra beina þeim tilmælum til tollyfirvalda að þeir loki ekki fyrir tollafgreiðslu hjá þeim sem standa í skilum með aðflutningsgjöldin í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar á meðan frumvarpið er í meðförum Alþingis. Gjaldendum verður gerð grein fyrir því að uppgjör með þessum hætti fari fram með fyrirvara um samþykki Alþingis," segir í tilkynningu fjármálaráðuneytisins.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira