Vonast til að eignir Landsbankans dugi upp í skuldir vegna Icesave 14. nóvember 2008 11:42
Bæði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra vonast til að eignir Landsbankans nái upp í skuldir vegna Icesave-reikninganna. Þetta kom fram í máli þeirra eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Björgvin sagði við fréttamenn að flest benti til þess að eignir næðu upp í skuldir og vitnaði hann enn fremur til orða Björgólfs Guðmundssonar, fyrrverandi aðaleiganda bankans, í Kastljósi í gær þar um. Hann sagði mikilvægt að varðveita eignir Landsbankans í Bretlandi en vildi ekki fullyrða hvort það tækist. Aðstæður á markaði væru erfiðar. Um orð Gylfa Arnbjörnssonar í Mannamáli á sunnudag að Björgvin og Árni Mathiesen fjármálaráðherra ættu að axla ábyrgð á ástandinu og segja af sér sagði Björgvin: „Við munum öll, bæði ráðherrar þessarar ríkisstjórnar og fyrri, horfast í augu við gjörðir okkar þegar úttekt liggur fyrir á falli bankanna. Ekki mun ég skorast undan því þegar að því kemur," sagði Björgvin. Hann sagði enn fremur aðspurður að Gylfi mætti hafa sína skoðun á þessum málum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði Icesave-deiluna erfiðustu milliríkjadeilu sem við hefðum átt í. Mjög nauðsynlegt væri að lausn fengist í málinu svo eðlileg viðskipti og samskipti gætu átt sér stað. Varðandi eignir og skuldir vegna Icesave sagði Ingibjörg að guð léti á gott vita ef Björgólfur hefði haldið því fram að hægt væri að ná eignum upp í skuldir að fullu. Um hlut Frakka í lausn deilnanna sagði hún að þeir væru í forystu hjá ESB og hefðu leitast við að finna leiðir út úr deilunni. „Við höfum notið góðs af því," sagði hún enn fremur.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegt tímabil klárast á dögunum Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Sjá meira