Finnskri ferðabók um Ísland fylgt úr hlaði Atli Steinn Guðmundsson skrifar 30. maí 2008 16:14 Höfundarnir, Björgvin Hilmarsson og Satu Rämö. MYND/Björgvin Hilmarsson
Íslensk-finnskt par stendur að ferðabók um Ísland sem gefin er út sem hluti af finnsku ferðabókaröðinni Mondo og er þar um að ræða fyrstu bókina um Ísland sem út kemur á finnsku. Höfundarnir eru þau Björgvin Hilmarsson, líffræðingur og ljósmyndari, og Satu Rämö unnusta hans sem að sögn hafa lagt gríðarlega vinnu í að koma bókinni Mondo matkaopas Islanti út en þýðing titilsins myndi útleggjast Ferðabók Mondo um Ísland. Björgvin segir að í bókinni sé að finna allar helstu upplýsingar sem ferðamenn leggi sig eftir og sé þar fjallað um veitingahús, gisti- og ferðamöguleika auk þess sem í bókinni sé að finna viðtöl við ýmsa þekkta Íslendinga sem lýsa andlegu atgervi íslensku þjóðarinnar eins og það kemur þeim fyrir sjónir. Meðal viðmælenda má nefna Andra Snæ Magnason, Vigdísi Grímsdóttur, doktor Gunna og fleiri. Óku 14.000 kílómetra „Við vorum í upplýsingaöflun fyrir bókina í fjóra mánuði síðasta sumar auk þess sem tveir mánuðir kringum áramótin fóru í hana," útskýrir Björgvin. Hann segir vinnslu bókarinnar hafa útheimt mikil ferðalög um Ísland og hafi þau Satu ekið nálægt 14.000 kílómetrum um landið að ógleymdum gönguferðum þvers og kruss um hálendið. Finnskum ferðamönnum á Íslandi hefur fjölgað mjög mikið undanfarin ár að sögn Björgvins enda sé bókin unnin í náinni samvinnu við Icelandair í Finnlandi. Hann segir Finna almennt hrifna af Íslandi enda séu þeir orðnir meðvitaðri um landið í kjölfar ýmiss konar viðskiptatengds fréttaflutnings auk þess sem staða evrunnar gagnvart krónu sé um þessar mundir þannig að hagstætt sé fyrir finnska ferðamenn að gera strandhögg á Íslandi. Ekki bara ætlað ferðamönnum Útgefandinn Image Publishing í Helsinki gefur Mondo-ferðabækurnar út og segir Björgvin sérstöðu bókaflokksins sem ferðabóka meðal annars felast í því að þær einblíni ekki á fólk sem ætli sér endilega að ferðast til viðkomandi landa: „Þessar bækur nýtast líka sem lesefni til fróðleiks og kynningar fyrir þá sem hafa áhuga á tilteknum löndum án þess að þeir séu beinlínis að leita að bestu söfnunum eða veitingahúsunum. Almennt fróðleiksgildi þeirra er mjög mikið og oft vekur lesturinn einmitt áhuga á að leggja land undir fót og fara til viðkomandi lands sem er einmitt snilldin við þetta," segir Björgvin. Hann segist eiga von á því að upplag fyrstu prentunar bókarinnar verði 9.000 eintök en hún er um 400 síður og ríkulega myndskreytt. Bókin er sem fyrr segir á finnsku og verður seld í Finnlandi en áhugasömum kaupendum er bent á að hana megi kaupa á vefnum www.mtv3.fi/store.
Mest lesið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið Konur leggja niður störf og krefjast jafnréttis Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið „Maður er sjálfur ákveðið vörumerki“ Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Fleiri fréttir Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Sjá meira