Lífið

Sienna Miller er með spikaðan rass

Það lítur þrátt fyrir allt ekki út fyrir að stefna í stórkrísu hjá Miller.
Það lítur þrátt fyrir allt ekki út fyrir að stefna í stórkrísu hjá Miller.
Leikkonan Sienna Miller segir að samband hennar við kærastann, Rhys Evans hafi gert hana að matarfíkli, með sérstakan áhuga á kavíar, og þetta hafi haft afdrifaríkar afleiðingar á áður stinnan afturenda hennar.

,,Hann hristist þegar ég labba. Í alvöru, ég er með rosalega linan rass." sagði leikkonan í viðtali við Vogue, og bætti við að suma daga horfði hún á djásnið í spegli og fylltist viðbjóði.

Miller sagði einnig að líf hennar og Evans snerist algerlega um mat, og þau væru með hann á heilanum. ,,Við erum algjörlega háð kavíar. Ég veit það hljómar fáránlega, en við erum fíklar," sagði leikkonan, og bætti við að hún væri líka sérdeilis hrifin af frönskum kartöflum bleyttum í súkkulaðisjeik.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.