Stærsti samningur OR frá upphafi 30. maí 2008 18:25 Ólafur Ragnar Grímsson hélt erindi við þetta tilefni.
Í dag var skrifað undir stærsta samning sem Orkuveita Reykjavíkur hefur gert frá upphafi. Samningurinn er gerður við fyrirtækin Mitsubishi og Balcke-Dürr um kaup á fimm vélasamstæðum fyrir gufuaflsvirkjanir á Hengilssvæðinu. Fjárhæð samningsins nemur um 13,7 milljörðum króna. Undirritunin fór fram að viðstöddum forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, í Hellisheiðarvirkjun í dag og skrifuðu m.a. undir samningana Hjörleifur B. Kvaran forstjóri, f.h. Orkuveitu Reykjavíkur, Hiroyuki Iwase framkvæmdastjóri, f.h. Mitsubishi, og Claus Brinkmann forstjóri, f.h. Balcke-Dürr. Vélakaupin eru gerð að undangengnu útboði þar sem fyrirtækin tvö áttu hagstæðasta boð. Hver vélanna fimm hefur 45 megavatta afl og er samanlagt afl þeirra þá 225 megavött. Þær verða afhentar á árunum 2010 og 2011 og settar upp í virkjunum á Hengilssvæðinu. Í ávarpi sínu við undirritunina vísaði Hjörleifur B. Kvaran forstjóri OR meðal annars til jarðskjálftanna á Suðurlandi í gær og sagði: "Í ljósi þeirra hamfara sem urðu hér á svæðinu í gær kunna menn að spyrja hvort ekki sé mikil áhætta í þessu fólgin. Auðvitað er það áhætta, en það er útreiknuð áhætta. Jarðvarmavirkjanir verða ekki byggðar nema á eldvirkum svæðum. Hin eftirsótta sérþekking sem útlendingar sjá hjá okkur Íslendingum felst einmitt hvað helst í því að við höfum mesta og besta reynslu af því að eiga við óvissu náttúruaflanna. Það sýndi sig í gær að mannvirkin hér stóðust áraun skjálftanna með mikilli prýði." Þá nefndi Hjörleifur að vísbendingar væru um að afl borhola á Hengilssvæðinu hefði vaxið við skjálftana í gær. "Um leið og hugur okkar er hjá þeim sem urðu fyrir búsifjum vegna jarðskjálftanna í gær, getum við líka hugleitt að jarðskjálftar eru líka endurnýjunarleið þeirrar auðlindar sem við erum að nýta. Ef ekki væri fyrir þessa hreyfingu jarðskorpunnar hér á eldvirka beltinu, myndi auðlindin smátt og smátt dala." Strax klukkan sjö í gærmorgun óx afl borholu í Hverahlíð, sem tengd er sírita, um helming, en dalaði síðar lítið eitt. Jarðvísindamenn telja áhugavert að skoða hvort um hafi verið að ræða fyrirboða Suðurlandsskjálftanna síðar um daginn.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira