Svali Frakkinn mætir í ágúst 30. maí 2008 14:30 Sébastien Tellier spilar á Íslandi 28. ágúst.
Hinn eitursvali og æðislegi Sébastien Tellier leikur með hljómsveit sinni í Reykjavík 28. ágúst. Frakkinn vakti mikla athygli í Eurovision þar sem hann flutti lag sitt „Divine" fyrir Frakkland. Hann reið reyndar ekki feitum hesti frá keppninni, lenti í 19. sæti með 47 stig. En þótt hann hafi verið of svalur fyrir Evrópu kveikti hann í Íslendingum, sem gáfu honum átta stig. Það er því eflaust himnasending fyrir marga hér að fá að sjá meistarann í návígi. Lagið í keppninni er af plötunni Sexuality, sem Sébastien lýsir sem „ellefu laga hugleiðslu um ástaratlot". Kynþokkinn drýpur af hverjum tóni á plötunni og það var sjálfur Guillaume Emmanuel Paul de Homem-Christo, annar helmingur Daft Punk, sem verkstýrði henni. Þetta er þriðja sólóplata Sébastien. Sú fyrsta, L'incroyable Vérité (Hinn ótrúlegi sannleikur), kom út 2001. Í kjölfarið hitaði hann upp fyrir Air á miklu tónleikaferðalagi um heiminn og lagið „Fantino" heyrðist í mynd Sofiu Coppola, Lost in Translation. Önnur platan, Politics, kom út 2005 og fjallaði hún um stjórnmál. Á plötunni er hið epíska meistaraverk „La Ritournelle". Í því tekur Tony Allen, trommari og hljómsveitarstjóri Fela Kuti, virkan þátt. Það lag sló í gegn svo um munaði og vakti athygli alls heimsins á þessum sérvitra snillingi. Nánari upplýsingar um miðasölu og staðsetningu tónleikanna verða tilkynntar síðar.
Mest lesið „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlist Patrick Muldoon er látinn Bíó og sjónvarp Ari Edwald selur í Garðabænum Lífið Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Lífið „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Lífið Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Lífið Fleiri fréttir Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Sjá meira