Eyjamenn leggja mikla áherslu á ferju í júlí 2010 Atli Steinn Guðmundsson skrifar 30. maí 2008 13:27 Herjólfur. Eyjamenn vonast eftir að ný ferja geti leyst hann af hólmi eigi síðar en í júlí 2010. MYND/Gunnar V. Andrésson „
Við fögnum því auðvitað að það sé einhver niðurstaða að koma í þetta og þrátt fyrir að hafa verið bjóðendur í málinu ásamt Vinnslustöðinni höfum við alltaf litið á þetta sem tvö aðskilin mál," sagði Gunnlaugur Grettisson, forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja, inntur eftir viðbrögðum Vestmannaeyinga við þeirri ákvörðun samgönguráðherra að falla frá smíði Vestmannaeyjaferju í einkaframkvæmd en bjóða verkið þess í stað út með hefðbundnum hætti eins og Vísir greindi frá fyrr í dag. Gunnlaugur segir hin tvö aðskildu mál vera annars vegar samgöngubótina er ný ferja hafi í för með sér og hins vegar útboðið og rekstur Vestmannaeyinga á ferjunni. „Nú leggjum við bara gríðarlega áherslu á það að verkið tefjist ekki og fari í gang 1. júlí 2010, það er algjör grundvallarpunktur fyrir okkur Vestmannaeyinga. Tíminn vinnur á móti okkur, nú fer þetta aftur í útboð og allt sem því fylgir," segir Gunnlaugur og leggur mikinn þunga á dagsetninguna vegna þess hve miklu það skipti, að sögn kunnugra, að hefja siglingar á nýrri siglingaleið að sumri og svo reynsla hafi fengist á hana er vetrar. „Það var ekkert aðalatriði," svarar Gunnlaugur þegar blaðamaður spyr hann út í hvort Eyjamönnum þyki ekki svekkjandi að hafa misst af rekstri ferjunnar. „Aðalatriðið er samgöngubótin. Okkar bæjarstjóri vann þarna mjög gott starf með þessum hópi við að bjóða í þetta og það var bónus en aðalatriðið var samgöngubótin," ítrekar Gunnlaugur.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Sjá meira