Lífið

Brigitte Nielsen fær sér ný brjóst í beinni - myndir

Brigitte Nielsen, 44 ára, ánægð með árangurinn.
Brigitte Nielsen, 44 ára, ánægð með árangurinn.

Rúmlega tvær milljónir Þjóðverja stilltu á sjónvarpsstöðina RTL til að sjá raunveruleikaþátt um fyrrverandi eiginkonu hasarhetjunnar Sylvester Stallone, Brigitte Nielsen en hún varð fræg á níunda áratugnum fyrir hlutverk sín í myndum á borð við Rocky IV og Beverly Hills Cop.

Í þáttunum mun Nielsen ganga undir fjölda aðgerða eins og fitusog, andlitslyftingu með hjálp Botox, tannaðgerðir og brjóstastækkun svo eitthvað sé nefnt í þeirri von um að líta betur út. Lýtalæknirinn Gerhard Sattler sem er talinn einn sá færasti þar í landi hefur umsjá með breytingunum.

„Ég er meðvituð um að ég er fyrsta fræga konan í heiminum sem leyfir sér að fara í slíkar aðgerðir fyrir opnum tjöldum," segir Brigitte.

„Og ég er meðvituð um að ég er að brjóta niður múra og færa umræðuna á annað stig. Það er kominn tími fyrir breytingar. Mér líður eins og ég sé þrítug og þrái að líta þannig út á ný."

Titill raunveruleikaþáttanna nefnist: From Old to New: Brigitte Nielsen in the Celebrity Clinic. Þar fá áhorfendur að fylgjast með aðgerðunum sem hún gengur í gegnum frá upphafi til enda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.