Lífið

„Þetta voru rosaleg átök," segir Hugrún fyrrum ungfrú Ísland nýbökuð móðir

Fyrir miðju er Hugrún Harðardóttir 24 ára nýbökuð móðir.
Fyrir miðju er Hugrún Harðardóttir 24 ára nýbökuð móðir.

„Þetta gengur bara ótrúlega vel. Hann er svo þægur og góður og ekkert fyrir honum haft," svarar Hugrún Harðardóttir sem var kosin Ungfrú Ísland árið 2004 þegar Vísir óskar henni til hamingju með frumburðinn, heilbrigðan dreng, sem hún fæddi 1. ágúst síðastliðinn.

„Ég er öll að koma til. Þetta voru rosaleg átök og ég er aðeins eftir mig en ég fór heim daginn eftir. Hann fæddist rúmlega 13 merkur og 50 sentimetrar og er nettur og fínn," segir Hugrún ánægð.

„Ég er að kynnast nýrri hlið á sjálfri mér í þessu hlutverki. Hlutir sem skiptu mig frekar miklu máli eru dálítið ómerkilegir núna. Fjölskyldan mín er númer eitt, tvö og þrjú."

Kærasti Hugrúnar er Logi Unnarsson Jónsson.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.