Lögregluaðgerð gagnvart hælisleitendum lögleg 5. desember 2008 09:22 Frá aðgerðum lögreglu þann 11. september. MYND/Hilmar Bragi
Ekkert bendir til annars en að fullnægjandi lagaheimildir hafi legið fyrir við þær aðgerðir sem lögreglan á Suðurnesjum greip til gagnvart hælisleitendum þann 11. september síðastliðinn. Þetta kemur fram í úttekt sem LOGOS lögmannsþjónusta vann að beiðni Rauða kross Íslands. „Hinsvegar skal tekið fram að nokkuð ber í milli í frásögnum hælisleitenda eins og þær birtast í skýrslum Rauða krossins og lögregluskýrslum. Samkvæmt upplýsingum nokkurra hælisleitenda nutu þeir ekki aðstoðar túlks og er því viðbúið að lögreglu hafi verið illmögulegt að uppfylla kröfur laga um að leita samþykkis allra þeirra sem sættu húsleitinni," segir í tilkynningu frá Rauða krossinum. „Þá ber lögreglu einnig samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu að vekja athygli þess sem sætir húsleit að honum sé heimilt að óska eftir verjanda við rannsókn máls áður en til húsleitar komi. Í skýrslunni segir að ljóst megi heita að til lítils sé að kynna hælisleitendum gögn eða upplýsingar á tungumáli sem þeir ekki skilja. Af sömu sökum verður þeim heldur ekki gert kunnugt um rétt sinn til að fá skipaðan verjanda," segir einnig og því bætt við að stjórn Rauða kross Íslands árétti því að ætíð beri að sjá til þess að viðeigandi túlkar séu til staðar við aðgerðir sem þessar til þess að gæta þess að allir hlutaðeigandi skilji aðstæður og því hægt að uppfylla kröfur um meðalhófsregluna og þeirra laga sem meðferð opinberra mála gera til hennar. „Sama gildir um skyldu lögreglu til að tilkynna hælisleitanda um rétt til að fá skipaðan verjanda." Rauði krossinn, sem fer með málsvarahlutverk og réttindagæslu hælisleitenda hér á landi, leitaði til LOGOS lögmannsþjónustu um gerð úttektarinnar vegna kvartana hælisleitenda og þeirrar gagnrýni sem fylgdi í kjölfar húsleitar lögreglu og haldlagningu muna þeirra. Úttekt lögmannsþjónustunnar var tvíþætt, annarsvegar hvort lögmæt skilyrði hafi verið fyrir húsleitinni og hinsvegar hvort gætt hafi verið og fylgt í hvívetna ákvæðum laga um framkvæmd hennar. „Niðurstaðan er sú að lagaheimildir hafi legið fyrir um beitingu húsleitar sem rannsóknarúrræðis samkvæmt 29. gr. útlendingalaga og að, samkvæmt lögregluskýrslum, hafi ekkert komið fram sem bendir til annars en að við framkvæmd aðgerðanna hafi réttilega hafi verið að verki staðið. Þá virðist sem flestir munir sem voru teknir af lögreglu hafi verið þess lags að fullnægjandi tilefni og heimildir hafi verið fyrir haldlagningu þeirra," segir að lokum.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira