Annríki hjá sjálfboðaliðum Rauða krossins fyrir jólin 15. desember 2008 16:11
Um 200 sjálfboðaliðar Reykjavíkurdeildar Rauða krossins eru að störfum fyrir og um jólin vegna matar- og fataúthlutana, og í Konukoti, athvarfi fyrir heimilislausar konur. Í tilkynningu frá Rauða krossinum segir að sjálfboðaliðum við þessi verkefni hafi fjölgað um 50 frá síðasta ári vegna aukningar sem tengja má efnahagsþrengingum. „Skráning nýrra sjálfboðaliða hjá Reykjavíkurdeild frá september til desember er um 30% meiri en á sama tímabili 2007. Nú í ár, eins og undanfarin ár, er samstarf um matarúthlutun fyrir jólin á milli Reykjavíkurdeildar Rauða krossins, Hjálparstofnunar kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar." Veruleg aukning á beiðnum um aðstoð Þá segir að rúmlega 70 sjálfboðaliðar Rauða krossins komi að úthlutunninni við skipulagningu, pökkun og dreifingu matvælanna. „Byrjað verður að senda matargjafir út á land þann 15. desember en úthlutun í Reykjavík hefst þriðjudaginn 16. desember. Matarsendingar út á land hafa tvöfaldast frá því í fyrra. Veruleg aukning er einnig í beiðnum um aðstoð í Reykjavík en endanlegar tölur liggja ekki fyrir. Fjöldi einstaklinga og fyrirtækja hafa lagt samstarfinu lið með framlögum í vörum, fjármunum, aðstöðu og vinnuframlagi. Er þeim öllum þakkað rausnarlegt framlag sitt til verkefnisins." 100 starfa við fatasöfnun „Fatasöfnun- og flokkun Rauða kross deilda á Höfuðborgarsvæðinu er umfangsmikið verkefni sem hefur á að skipa um 100 sjálfboðaliðum sem starfa við flokkun og sölustörf í búðum fatasöfnunarinnar að Laugavegi 12 og 116," segir einnig í tilkynningunni. „Að Laugavegi 116 fer einnig fram fataúthlutun einu sinni í viku, á miðvikudögum milli kl. 10:00 og 14:00. Þar taka sjálfboðaliðar á móti einstaklingum sem á þurfa að halda og geta þeir valið úr fötum á sig eða börnin sín í tvo haldapoka. Hver einstaklingur gefur fengið úthlutað fötum allt að fjórum sinnum á ári." Þá rekur Reykjavíkurdeild Konukot í samstarfi við Velferðarsvið Reykjavíkurborgar. Þar starfa 40 sjálfboðaliðar auk starfsmanns Konukots að því er fram kemur. „Yfir hátíðirnar verður opið allan sólarhringinn í Konukoti og á aðfangadag kemur úrvals kokkur til að elda hátíðarkvöldverð fyrir gesti . Verða það þriðju jólin sem hann bíður fram aðstoð sína." Aldrei fleiri umsóknir í Elínborgarsjóð Elínborgarsjóður var stofnaður af Sören Sörenssyni til minningar um eiginkonu hans, Elínborgu Sigurðardóttur. „Tekjur sjóðsins eru höfundarlaun af ensk - íslensku orðabók Arnar og Örlygs auk vaxtatekna sem notaðar eru til úthlutunar. Umsóknir um styrki úr Elínborgarsjóði eru ríflega helmingi fleiri nú í ár en undanfarin ár en um 150 umsóknir hafa verið afgreiddar til einstaklinga sem búa við erfiðan efnahag. Umsóknir í Elínborgarsjóð koma frá prestum, félagsráðgjöfum og samtökum sjúklinga fyrir hönd skjólstæðinga þeirra. Til þess að koma til móts við aukna þörf í samfélaginu í dag og þeim afföllum sem orðið hafa í vaxtatekjum sjóðsins lagði Reykjavíkurdeild viðbótar fjármagn í úthlutunina. Úthlutun er nú lokið," segir einnig í tilkynningunni frá Rauða krossi Íslands.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Fleiri fréttir „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Lýsa eftir Írisi Elvu Tíu milljarða króna verk en ljósastýrð gatnamót Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Sjá meira