Akureyrarbær greiði Svefni og heilsu 218 milljónir fyrir hús og lóð 7. apríl 2008 16:18
Akureyrarbæ ber að greiða Svefni og heilsu um 218 milljónir króna fyrir húsnæði og lóðaréttindi vegna framkvæmda við stækkun og endurbætur verslunarmiðstöðvarinnar Glerártorgs. Að þessu hefur matsnefnd eignarnámsbóta komist. Fram kemur í tilkynningu frá Akureyrarbæ að Svefn og heilsa hafi krafist rúmlega eins og hálfs milljarðs króna vegna kaupanna. „Deila Svefns og heilsu og Akureyrarbæjar snýst fyrst og fremst um niðurrif byggingar sem er að fullu í eigu SMI ehf. en er áföst húsnæði Svefns og heilsu. Málið snýst einnig um niðurrif hluta tengibyggingar sem er 15% í eigu Svefns og heilsu og tengdi áður húsnæði verslunarinnar við húsnæði gömlu Sambandsverksmiðjanna sem hafa þegar verið fjarlægðar. Niðurrifið er samkvæmt gildandi deiliskipulagi sem heimilar stækkun verslanamiðstöðvarinnar. Mikilvægt er að byggingarnar víki til þess að tryggja eðlilegt aðgengi að nýju og endurbættu Glerártorgi. Ekki er hins vegar nauðsynlegt að rífa verslunarhúsnæði Svefns og heilsu og Húsgagnanna heim," segir í tilkynningu Akureyrarbæjar. Þar segir einnig að eigandi Svefns og heilsu hafi ekki orðið við ósk Akureyrarbæjar um umbeðið niðurrif og ekki náðist samkomulag um kaupverð við eigandann. Því var leitað til Matsnefndar eignarnámsbóta um að meta eðlilegt kaupverð eigna Svefns og heilsu. Í framhaldinu fór eigandinn fram á að bærinn yfirtæki allar eignir hans við Dalsbrautina, þ.e. verslunarhúsnæði, lagerhúsnæði og tengibyggingu auk lóðaréttinda. Akureyrarbær hefur kaupanda að umræddum eignum og verður því ekki fyrir fjárhagslegum útgjöldum vegna þessa úrskurðar. Akureyrarbær fagnar niðurstöðu nefndarinnar en harmar að ekki skyldi hafa náðst sátt í málinu.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira