Vörubíl ekið á öfugum vegarhelmingi á móti jeppa 7. apríl 2008 13:13
Lögreglan á Selfossi leitar að ökumanni vörubíls vegna alvarlegs umferðaratviks sem varð á Þrengslavegi til móts við Lambafellsnámu á föstudagsmorgun. Fram kemur í dagbók lögreglunnar að ökumaður jeppa með kerru í eftirdragi hafi verið á leið suður Þrengslaveg þegar vörubifreið var ekið frá námunni og inn á þjóðveginn í veg fyrir jeppabifreiðina. Vörubifreiðastjórinn ók inn á rangan vegarhelming og hélt sig þar þrátt fyrir að jeppabifreiðin kæmi á móti. Ökumaður jeppabifreiðarinnar, sem var einn í bifreið sinni, sá sér þann kost bestan til að bjarga lífi sínu og lenda ekki beint framan á vörubifreiðinni að beygja til vinstri yfir á rangan vegarhelming. Segir lögregla ljóst að þarna hefði orðið alvarlegt slys ef einhver hefði verið á hinni akreininni og eins ef jeppabifreiðinni hefði verið stefnt útaf veginum. Ekki tókst að ná niður skráninganúmeri vörubifreiðarinnar og þar sem kerra var aftan í jeppanum gafst ökumanni hans ekki færi á, án hættu, að snúa við til að ná vörubifreiðinni. Hafi einhver vegfarandi orðið vitni að þessu tilviki er hann vinsamlegast beðinn að hafa samband við lögreglu í síma 480-1010. „Í leiðinni biður lögregla alla vegfarendur sem koma af hliðarvegi inn á þjóðveg að gæta fyllstu varúðar og virða umferðarrétt og tefla ekki á tæpasta vað við að fara inn á þjóðveg. Af þessu tilefni mun lögreglan á Selfossi fylgjast með því á næstunni hvernig umferðarréttur er virtur," segir í dagbók lögreglunnar.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira