Innlent

Rannsaka hvort brennuvargur leiki lausum hala

Slökkviliðsmenn af höfuðborgarsvæðinu björguðu átta hrossum á síðustu stundu út úr logandi hesthúsi við Sörlaskjól, ofan við Hafnarfjörð, eftir að einhver kveikti í húsinu.

Þetta gerðist laust fyrir klukkan fjögur í nótt og sakaði hrossin ekki þótt talsverður reykur hafi verið orðinn í húsinu. Það var lán í óláni að eldvarnaveggur var á milli rýmisins, sem kveikt var í, og rýmisins, sem hrossin voru í. Svo voru slökkviliðsmennirnir skammt undan að slökkva eld, sem kveiktur hafði verið í mannlausum stolnum bíl, þegar fregnir bárust af eldinum í hesthúsinu. Voru þeir því fljótir á vettvang.

Lögregla telur fullvíst að kveikt hafi verið í bílnum og hesthúsinu en enginn sérstakur liggur undir grun. Þessar íkveikjur bætast við margar aðrar á höfuðborgarsvæðinu síðustu tvær til þrár vikurnar, einkum í mannlausum bílum. Lögregla rannsakar meðal annars hvort tengsl geti verið á milli þeirra og jafnvel hvort sjúkur brennuvargur leiki lausum hala.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×