Vonast til að Reykjanesbraut klárist að mestu fyrir 15. október 7. apríl 2008 15:55 MYND/GVA
Samgönguráðherra á von á því að Reykjanesbraut verði umferðarhæf fyrir 15. október í haust og að þá verði lokið framkvæmdum við tvöföldun hennar. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, flokkssystur hans, á Alþingi í dag. Steinunn benti á að framkvæmdin hefði tafist nokkuð og ástand umferðaröryggismála væri óásættanlegt. Hún hefði upplýsingar um að 23 slys hefðu orðið á spottanum frá Vogaafleggjara til Keflavíkur, þar af þrjú alvarleg. Spurði hún ráðherra hvernig auka ætti umferðaröryggi á þessum kafla. Kristján L. Möller samgönguráðherra benti á að fram hefði komið að tvöföldun Reykjanesbrautar hefði tafist vegna gjaldþrots verktaka. Sagði hann að samkomulag hefði náðst við Eykt um að byggja tvær brýr sem eftir væru en hins vegar hefði þurft að bjóða út afgang framkvæmdanna. Ef hann misminnti ekki yrðu tilboð opnuð á morgun og framkvæmdir hæfust væntanlega í framhaldinu. Samkvæmt áætlunum yrði gatan umferðarhæf 15. október. Þá benti ráðherrann á að vegmerkingar hefðu verið settar upp á umræddum spotta. Þar væru vegmerkingar með 50 kílómetra hámarkshraða en þegar hann hefði ekið þar um hefðu margir ekið hraðar en það. Aðalatriðið væri að vegfarendur sýndu varkárni í akstri.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira