Lögreglunemar æfa viðbrögð við hópslysi 7. apríl 2008 14:10 MYND/Hari
Lögregluskóli ríkisins stendur fyrir hópslysaæfingu á Bláfjallavegi við Sandskeið á morgun þar sem rútuslys verður sett á svið.Auk lögregluskólans koma almannavarnardeild ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslan, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Rannsóknarnefnd umferðarslysa að æfingunni. Samkvæmt tilkynningu frá Lögregluskólanum lendir hópferðabíll utan vegar eftir að hafa reynt að komast hjá árekstri við fólksbíl. 18-20 manns slasast í hinu sviðsetta slysi og eiga lögreglumenn á vettvangi að kalla á þær bjargir sem þeir þurfa, þar á meðal þyrlu, tækja- og sjúkrabíla og mann frá rannsóknarnefnd umferðarslysa.Markmið æfingarinnar er að æfa viðbrögð og samvinnu lögreglunema við hópslysi. Nemendur þurfa að bregðast við þeim aðstæðum sem kunna að koma upp á vettvangi slyssins. Mikilvægt er að afgreiða málið sem alvöru verkefni segir í tilkynningunni.Þetta er í fyrsta skipti sem slík æfing er haldin á vegum Lögregluskólans og segja forsvarsmenn skólans að þetta sé merki um hversu mikill metnaður sé hjá skólanum að halda raunverulegar æfingar til að undirbúa verðandi lögreglumenn undir það sem koma skal.Lögreglumennirnir verða sendir í slysið klukkan hálfellefu í fyrramálið en alls taka 45 nemendur þátt í æfingunni, ýmist sem lögreglumenn eða slasaðir.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira