Innlent

Mál Róberts Árna fyrir Hæstarétt í næstu viku

Kompás fjallaði um mál lögmannsins í fyrrahaust.
Kompás fjallaði um mál lögmannsins í fyrrahaust. MYND/Stöð 2

Mál ákæruvaldsins á hendur Róberti Árna Hreiðarssyni, fyrrverandi lögmanni, verður tekið fyrir í Hæstarétti eftir viku.

Róbert Árni var í september síðastliðnum dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart fjórum stúlkum og sömuleiðis fyrir vörslu barnakláms. Róbert var meðal annars sakfelldur fyrir að hafa tælt ungar stúlkur til kynferðismaka við sig gegn peningagreiðslum en hann komst í samband við þær með því að villa á sér heimildir á Netinu.

Héraðsdómur sagði ljóst Róbert hefði nýtt sér yfirburðastöðu sína í krafti aldurs síns og reynslu gagnvart unglingsstúlkunum sem voru á viðkvæmu kynþroskaskeiði. Róbert var starfandi lögfræðingur þegar brotin áttu sér stað en hann hafði meðal annars annast hagsmunagæslu fyrir brotaþola í sakamálum og sinnt verjandastörfum í kynferðisbrotamálum.

Róbert var sviptur lögmannsréttindum sínum með dómi Héraðsdóms sem tekinn verður fyrir í Hæstarétti í næstu viku sem fyrr segir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×