Fyrsta „grípa með-humarsúpan“ frá ungum athafnakokki á Hornafirði Atli Steinn Guðmundsson skrifar 4. júlí 2008 11:30 Jón Sölvi býður glaðbeittur fram súpuna. MYND/Sigurður Mar
Það er óhætt að halda því fram að frumleikinn sé skammt undan hjá Hornfirðingum um helgina. Þannig teflir ungur athafnamaður, matreiðslumaðurinn Jón Sölvi Ólafsson, fram því sem að öllum líkindum er fyrsta „grípa með-humarsúpan" (e. take away) á landinu. „Ég eignaðist skyndibitastað og byrjaði á hamborgurum 15. nóvember í fyrra. Svo fylgdu pizzusneiðar í kjölfarið og í sumar ákváðum við að fara út í humarsúpu. Við ætluðum að byrja á henni í júní en ákváðum svo bara að hleypa henni af stokkunum á humarhátíðinni," útskýrir Jón Sölvi.Kynnir súpuna í bás á hátíðinniÞetta er gripurinn. Nýgrillaður humar á spjóti fylgir.MYND/Björgvin HilmarssonAuk lúgusjoppu sinnar, sem gengur undir nafninu Kokkur, er Jón Sölvi með bás á humarhátíðinni þar sem hann kynnir afurðir sínar en þar siglir humarsúpan nýja í fararbroddi. „Við erum með rosalega gott hráefni til að vinna úr hérna á Hornafirði og þá er ég ekki bara að tala um humar heldur líka bleikju og fleiri afurðir," segir Jón Sölvi.Talið snýst að humarhátíðinni sjálfri og segir Jón Sölvi hana hafa farið mjög vel af stað. Mikið hafi verið að gera í nótt og logandi stemmning í bænum. Hann hafi bókstaflega verið að drukkna í humarsúpunni þar sem hann stóð í ströngu við að dæla henni í súpuþyrstan pupulinn við kynningarbásinn. Þess má geta að tréspjót með nýgrilluðum humri fylgir með súpunni auk þess sem hún er sprottin upp úr samstarfi Kokks og Matís sem lætur í té aðstoð faglærðra matvælafræðinga og -hönnuða.Humarhátíð Hornfirðinga hófst í vikunni og verður þar mikið um dýrðir að sögn vefjarins Hornafjörður.is. Kveðast Hornfirðingar leggja á það ríka áherslu að hátíðin í ár höfði til sem flestra aldurshópa.Svo sem nafn hátíðarinnar ber með sér leika matur og matargerð stórt hlutverk um helgina og fer humarinn þar fremstur í flokki. Má nálgast fjölda uppskrifta á Hornafjarðarvefnum auk ítarlegrar hátíðardagskrár.
Mest lesið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Nýjasta sumartrendið í boði Travolta Tíska og hönnun Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Lífið samstarf „Þetta parísarhjól sökkar“ Menning Fleiri fréttir Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Sjá meira